sunnudagur, október 28, 2007

Aftur til Hawaii?

Ég fékk 3ja daga helgi því að Cheyenne var veik á föstudaginn. Var einhvað að æla um nóttina, en var orðin full frisk um leið og skólin var búin. Hmmm ætli hún hafi ekki bara ýkt þetta heilmikið. Og svo var hún stór móðguð þegar ég leyfði henni ekki að fara út að leika sér. En svona er þetta þegar maður er of veikur fyrir skólan, þá er maður nú of veikur til að vera úti að leika sér.

Við Bret keyptum okkur skáp (fyrir sjónvarp, entertainment armoire) sem var á útsölu. Ég held nú að það hafi einhver klúðrað verðinu í búðinni. Að minsta kosti fann Bret efri hlutan fyrir 20 dollara, fórum að sækja hann og þá fann ég neðri hlutan á 40 dollara. Fólkið í búðinni sagði að þessir 2 hlutir færu nú bara ekkert saman. En ég vissi nú betur og við keyptum neðri hlutan líka. Sem sagt borguðum 60 dollara fyrir skáp sem kostar fullu verði um 1600 dollara. Ekki slæm kaup þann daginn hjá okkur. Annars er maðurinn minn óvenjulega duglegur að detta niður á góð verð.

Svo fékk Bret að vita hvert við eigum að fara næst. Og hvað heldurðu? Heldur þú ekki að hann sé nú bara búin að fá annað verkefni til Hawaii! Sem sé 3 ár hér í viðbót. Að vísu ætlar hann að sjá hvort hann geti fengið þessu breytt, þar sem að það eru 100 ástæður fyrir því að hann hefði ekki átt að vera valin til að fá þetta starf hér á eyjunni.

mánudagur, október 22, 2007

Mánudagur til Mæðu

Jæja það er nú að koma ein önnur vinnu vika. Æj mér fannst bara helgin ekki vera nógu löng. Ég væri sko alveg til í að liggja í leti í nokkra daga. En svona er þetta nú. Klukkan farin að ganga eitt um nótt og ég ekkert svo syfjuð ennþá. Nú og svo hjálpar það náttúrlega ekki til að karlin liggur hrjótandi við hliðina á mér, þurkarinn á fullu með hávaða skellum, og einhver padda í ljósinu með einhver læti. Ég spái að ég verði algerlega mygluð og ósofin í vinnunni á morgun.

Ég kláraði að lesa síðustu Harry Potter bókina í kvöld. Þetta tók mig nú engan smá tíma að lesa tæpa 3 mánuði! Maður hefði nú lesið þetta á 2 dögum hér áður fyrr, já svona þegar maður bjó barnlaus og áhyggjulaus á hótel mamma.

Djís þetta eru nú engar smá hrotur í Bret, kannski verð ég bara að fara að sofa á sóffanum. GRRR!!!!

miðvikudagur, október 10, 2007

Fluttningur

Jæja nú erum við bara alveg flutt. Skiluðum af okkur hinni íbúðinni í morgum. Maður var nú hálf stressaður yfir skoðuninni, en við flugum í gegn. Vorum að vísu búin að tína einum lyklinum af póstkassanum og það var víst 50 dollara sekt per lykil sem maður skilaði ekki. Vorum bara með 2 en áttum að hafa 3, svo að við rukum heim að leita og sem betur fer fannst lykillinn. Bara heppni að hafa ekki hent honum þar sem ég hafði ekki hugmynd um að þetta væri póstkassa lykill.

Þetta hús sem við erum í núna er ekkert smá betra. Það er allt miklu opnara og bjartara, já og svo bara meira pláss. Eina sem mætti vera betra er að það vantar fataskáp á gangin fyrir jakka og skó.

Engin skóli hjá mér þessa önnina. Ég hætti við reikningin þar sem Bret var ekki viss um að komast í gegnum hann, og þá var náttúrulega ekki séns að ég gæti einhvað í honum. Ætli það verði bara ekki ágætt að slappa af þessa önnina og koma húsinu í rétt horf.