
Það var bara ekkert smá drama í vinnunni í dag. Einn 9 ára gutti trompaðist þegar hann var sendur á skrifstofuna fyrir slæma hegðun (hann er með Cheyenne í bekk). Litli gaur hljóp út af skólalóðinni og neitaði að fara aftur í skólan. Þegar það var reynt að hjálpa honum að fara aftur inn í skólan þá sparkaði hann í pungin á einum ráðgjafanum, svo var hann að reyna að bíta starfsfólkið líka. Það var hringt í foreldrana hans og líka á lögguna.
Svo var maður ekkert að fá neinar smá fréttir frá pabba. Maður á bara sko eitt stykki systir í danmörku. Hún heitir Olga og á 2 litlar stelpur. Haha, ég er samt ennþá yngst.
Það var opið hús í skólanum hjá Gipsy í gærkvöldi. Geysp og gap, það var svo leiðinlegt. En maður verður víst að gera meira en það sem er gaman. Við hittum alla kennarana hennar, flestir virtust vera ágætir. Ja, nema kannski ensku-kennarinn hún var svona dálítið dauf og þreytt. Annað augað í henni var líka bókstaflega eldrautt, svo að Gipsy finnst hún vera krípý. Og svo gefur hún víst mikið að læra heima, sem er aldrei vinsælt hjá dóttir minni.
Kennarinn sem kennir samfélags og landa fræði, er sennilega á sextugs aldrinum og það er einhvað að honum. Hann talar rosalega lágt, en er samt hress og fyndin. Hann er með rosa kæki, eða þá að einhvað er ekki í lagi í taugakerfinu á karl greyinu. Önnur öxlin á honum kippist altaf til, og svo skellir hann saman tönnunum svo að það heyrist vel í þeim. Það gæti verið erfitt að einbeita sér af því sem kennarinn er að segja í staðin fyrir hvað hann er að gera.
Það verður opið hús í skólanum hjá Cheyenne í næstu viku. Það ætti nú að vera aðeins skemmtilegra þar sem hún er ekki með marga kennara og margar skólastofur. Kennarinn hennar er ólétt og á að eiga í næsta mánuði. Auminga litla Chey þarf að fá annan kennara á meðan kennarinn hennar er í fæðingar orlofi. Það verður kannski erfitt fyrir hana.
Og hver ætlar að koma í kaffi og köku á morgum þegar ég á afmæli? Munið þið ekki elskurnar að ég er að verða 35 ára á morgum… Sem betur fer man Bret að ég er bara að verða 29 ára.