fimmtudagur, september 06, 2007

Ég elska Kakó

Gipsy átti einhvað bágt með að jafna sig eftir magapestina um helgina. Svo að Bret for með hana til læknisins. Þá kom í ljós að hún hafi verið með svo mikið vökvatap úr líkamanum eftir flensuna og að hún hafi ekki náð að drekka nógu mikið til að bæta úr því. Svo að læknirinn sagði að hún yrði að drekka fullt af vatni og Gatoraide. Hún fór í skólan í dag svo að hún er orðin betri.

Maðurinn minn mútaði mér með heitu kakói til að koma að horfa á hann og stelpurnar í TaeKwonDo. Svo ég sit hér og sötra á, namm! Og horfi á þau og tölvuna mina til skiptis. Þau eiga svo að fara í próf í næstu viku til að fara upp á hærra stig, og ef allt gengur vel fá þau nýtt belti. Ef ég man rétt þá fá stelpurnar grænt belti. Annars er ég ekki alveg að fatta því það er tonn af fólki hér í kvöld. Svo að flest öll sætin hér sem maður getur séð vel úr eru tekin.

Svo sá ég í gær að það sé búið að lækka Apple Síman um slatta í verði, og ég er alveg sjúk í svoleiðis síma. Eninga meninga mig langar í fullt af peninga svo ég og karlin geturm kaupt svoleiðis síma. Já og svo auðvitað langar Gipsy og Chey í svoleiðis líka.

Engin ummæli: