mánudagur, júní 30, 2008

Ferðalag

Í dag er dagurin sem við flytjum í burt frá Hawaii. Ég væri sko alveg til í að taka veðráttuna með, því að ég mun sko sakna þess að hafa glampandi sól næstum alla daga ársins. Þrátt fyrir að við förum upp í flugvél bráðum þá finnst mér við ekkert vera að fara neitt.

Við vorum niður í bæ á Hale Koa Hótelinu í nokkra daga. Það var bara alveg ágætt að vera þar. Stelpurnar voru voðalega ánægðar með að leika sér í sundlauginni, og við Bret sátum á barnum og drukkum “tropical” drykki með ávöxtum og sólhlíf, namm….

Það var ágætt að geta loksins slappað af, það var ekkert lítið stress að reyna að pakka allri búslóðinni niður. Við settum allt inn í 12 metra langan gám og allt komst fyrir, við áttum meira að segja smá pláss eftir. Maðurinn minn var sko ekkert smá pirraður þegar hann var að reyna að raða öllu inn í gáminn. Hann var alveg alsæll nokkrum sinnum þegar hann hélt að allt væri komið inn og á réttan stað. En það var kassi hér og kassi þar sem þurfti að pakka og aumingja maðurinn minn var nú bara alveg að tapa glórunni þegar maður rétti honum meira dót. Hahaha…
Þegar gámurinn kemst svo á leiðarenda þá höfum við bara tvo klukkutíma til að tæma hann. Ef það tekur meira en tvo tíma að tæma gámin þá þurfum við að borga meiri pening.

Bíllinn okkar bíður svo eftir okkur í Los Angeles, Kalifornía. Við sækjum hann í fyrramálið og þá hefst okkar langi, langi ökutúr. Við ætlum að byrja á því að keyra til Las Vegas og gista þar yfir nótt, þaðan förum við að skoða miklagljúfrið eða The Grand Canion.

föstudagur, júní 06, 2008

Vinnan Göfgar Manninn...


Sem betur fer var föstudagur í dag. Þessi vika er búin að vera alger martröð. Það er búið að vera alveg brjálað að gera í vinnunni. Ég þurfti að útskrá í kring um 150 nemendur og það fylgir því mikil vinna. Og það var stöðug truflun frá foreldrum, nemendum, símtölum, og öðru starfsfólki. Plús að það var stöðugur straumur af fólki sem vildi skrá börnin í skólan. Kaupa boli og svo framvegis og svo framvegis…

Það er komin sjöundi júní og ekki hef ég nú komið miklu í verk heima hjá mér. Flutninga gámnum verður parkerað fyrir framan húsið hjá okkur eftir eina viku, og þá verður maður bara að vera rosa duglegur að pakka inn í hann. Við reynum svo sennilega að senda bílin okkar í þriðjudaginn. Svo að hann verði komin til Kaliforníu á undan okkur. Við ætlum sko að keyra þaðan til Louisiana. Bret kom loksins litla rauða sport kagganum á bílasölu, vonandi selst hann áður en við flytjum.

Við klárum svo skólan þann sextánda júní. Ég bíð sko óþolinmóð eftir að sleppa, er sko alveg að klepra á þessum reikningi. Svo innilega leiðinlegur og flókin. Einn nemandin kvartaði yfir hve nytjalaus þessi reikningur væri. Og kennarinn sagði að þetta væri nú bara helst til að þjálfa fólk í rök hugsun. Arg…