þriðjudagur, nóvember 27, 2007

Póker

Hverjum hefði getað dottið þetta í hug en ég er alger póker snillingur. Hehe… eða þannig. Maðurinn minn er búin að nöldra í mér í mörg ár um að fara að spila með sér póker. Ég var orðin svo leið á að hlusta á þetta vikulega nöldur í honum að að lofaði honum loksins að ég mundi fara með honum á eitt póker mót. Ég hugsaði með mér að það mundi nú ekki taka meira en 5 mínútur fyrir mig að tapa og sleppa þá heim. En það fór ekki svo það kvöldið, ég lenti í öðru sæti og vann ipod nano. Ég veit ekki alveg hvernig ég fór að þessu, bara kannski smá byrjenda heppni.
Dagin eftir sagði ég litlu Cheyenne frá verðlaununum mínum. Hún skríkti voða spent “vannstu pabba í póker?” Og svo hljóp hún til pabba sinns og hló að honum, það var alger snilld!
Nú og svo þar sem ég var í öðru sæti þá fæ ég að taka þátt í lokamótinu í póker. Þá get ég unnið einhvað um 50 tommu plasma sjónvarp eða 1500 dollara ferðalag einhvað. En ég á svo sannarlega ekki von á að komast neitt lengra en ég komst á minni blessuðu byrjenda heppni. En það kemur bara í ljós í janúar.

Við fórum í bíó um dagin og sáum Beowolf í þrívídd. Mér fannst bara rosalega gaman að henni. Það hafa bara verið flottar framfarir síðan ég sá myndi í þrívídd síðast. Mæli með þessari mynd það er að segja ef þú ert á leiðinni í bíó.

Það er alveg ótrúlegt að það sé komin desember á laugardaginn. Og við ekkert smá dugleg, búin að kaupa nokkrar gjafir sem er algert met fyrir þessa fjölskyldu. Maður bíður altaf fram á síðustu stundu.

þriðjudagur, nóvember 13, 2007

Á Hjóli

Maður neyðist nú til að vera duglegur þessa dagana. Það á að fara að skreyta turnin fyrir framan skólan. Á að gera hann voða flottan fyrir jólin. En því miður þýðir það að öllum bílastæðunum fyrir skólan er lokað fram í Janúar. Þess vegna ætla ég bara að hjóla í skólan með þeirri stuttu á morgnana þar til að bílastæðin opna aftur. Maður hefur nú bara gott að því.

miðvikudagur, nóvember 07, 2007

Er snjór hjá þér?

Jæja nú er það bara komið í ljós að karlinn fékk ekki verkefni til að vinna hér næstu þrjú árin. Hann fékk jú annað verkefni hér á Hawaii en bara í sex mánuði. Hann verður bara aðeins færður til í starfinu. Svo að við erum á leið héðan bráðum.

Okkur er farið að leiðast svolítið hve lítil eyjan er. Við elskum veðrið út af lífinu, en það er bara ekki nóg. Ég veit að maður á alveg pottþétt eftir að sakna þess, að geta sest út í sólina með kaffi bollann sinn allan ársins hring. Það er að vísu búið að rigna svolítið upp á síðkastið. Ég sá í sjónvarpinu að það var sagt að þetta mundi nú vera blautari vetur en fólk er vant hér. Það er nú samt allt í lagi, fíla regnið betur en snjó og hálku.

Við skelltum okkur í leikhús í gærkvöldi. Við fórum að sjá Ljóna Konginn. Það var gaman að sjá sýninguna og stelpunum fannst alveg æðislegt. Gipsy sagði að þetta væri sko svo miklu skemmtilegra að horfa á heldur en Ljóna Konginn á DVD. Svo kunni hún náttúrulega flest öll lögin og söng með. Sjá fyrir neðan úr söngleiknum.