miðvikudagur, október 29, 2008

Nokkrar Myndir

Jæja þá hefur maður það loksins af að setja inn nokkrar myndir. Það er svo mikið að gera í skólanum hjá mér að ég má varla vera að því að gera það sem þarf að gera. Ég er byrjuð að rífa niður veggfóðrið í skrifstofunni, það er nú ekkert smá mál. Þegar veggfóðrið var sett á veggina þá var ekkert verið að hafa fyrir því að grunna fyrst, nei veggfóðrinu var bara skellt beint á ótilbúinn vegginn. Svo að veggfóðrið er mikið til pikkfast og svo þegar maður nær að rífa einhvað þá kemur hluti af veggnum með. Svo erum við að spá í að setja þennan lit á veggin, hann heitir Sorbit. Annars erum við ekkert svo ástfangin af litnum þegar við settum smá á vegginn. Bret vill hafa hann bjartari semsé ljós gulan... Ég vill hins vegar hafa hann aðeins dekkri og aðeins meira út í brúnt. Vill einhvað hlutlaust en ekki hvítt. Við málum kannski nokkrum sinnum áður en við sættumst á einhvern lit.


Þarna er viftan eins og hún var í stofunni. Við tókum hana niður og settum flotta nýja viftu í staðinn, hún er meira að segja með fjarstýringu. Ég sprey málaði svo gömlu viftuna til að gera hana flottari, og ég er bara nokkuð ánægð með árangurinn. Svo tókum við bleyku viftuna niður úr eldhúsinu og settum þessa þar í staðin.


Þarna erum við búin að skipta um eldavél og örbylgjuofn. Við erum að spá í að hækka eldhús skápana þar sem þeir eru frekar lágir. Ég sprey málaði líka handföngin á skápunum. Ég er ekkert að fíla allt þetta gull litaða sem er út um allt.

Flotti nýji ískápurinn minn. Hann er alveg frábær. Það er alveg rosalega gott filter í honum fyrir vatn, svo að það er drekkandi núna. Vatnið í þessum bæ er eins og mold á bragðið og á lyktin líka, alger vibbi. Uppþvottavélin sker sig alveg úr, þarf sko að fá nýja svoleiðis. Þessi þvær nú ekkert rosavel og þarf að skola allt vel áður en sett er í hana.


Ég var í prófi í reikning um dagin og fékk 90 af 100 stigum. Ég er alveg rosalega montin, ég held sko að þetta sé bara hæðsta einkuninn sem ég hef fengið fyrir reikning á ævinni. En ég verð víst að halda áfram að læra þarf að taka próf í Fine Arts í dag, og svo fer ég í sálfræði tíma á eftir, þar sem verður talað um unglinga. Það er víst best að læra allt um þá svo að ég viti betur hvað hún litla Gipsy er að hugsa.

Annars missti ég alveg andlitið í gær. Mamma vinkonu hennar Gipsy trompaðist þegar dóttir hennar hætti með kærastanum sínum, mömmuni leist svo vel á hann að hún taldi hann vera þann eina sanna fyrir dóttur sína, og hún "grounded" hana fyrir að hætta með honum. Pældu bara í þessu stelpan er 13 ára, og mamman vill að hún bara bindi sig niður. Svo Gipsy spurði hvort við mundum gera þetta líka ef okkur líkað kærastinn hennar. Ég sagði nú bara nei, og að ég mundi nú gera ráð fyrir að hún mundi nú kannski eiga nokkra kærasta áður en hún veldi einvern til að eyða ævinni með.

fimmtudagur, október 02, 2008

Þvílík Hamingja

Það hafðist loksins af að fá húsið okkar afhent. Við fluttum inn á föstudagskvöld, og vorum svo að sækja dótið okkar smám saman yfir helgina. Svo fengum svo hjálp á mánudaginn við að flytja restina.

Ég þarf að drífa af lærdómin svo að ég geti rifið upp úr kössunum. Ég á að vera búin að taka próf í ensku fyrir sunnudagskvöld svo að ég er að reyna að lesa fyrir það próf. Svolítið skrítið ég er ekki vön að taka enskupróf með spurningum, venjulega þarf maður að skrifa ritgerð.

Stelpurnar og Bret eru alveg alsæl með sundlaugina og hoppa ofan í hana daglega. Ég hins vegar bara horfi á þau leika sér þar sem ég er svo mikil kuldaskræfa og vatnið er ískalt.

Nýji ískápurinn, eldavélin og örbylgjuofnin taka sig vel út í eldhúsinu. Maður neyðist seinna til að skipta um uppþvottavél líka þar sem sú sem var í húsinu er hvít og passar ekki við nýju hlutina. Annars varð ég rosalega skúffuð þegar ég var að skoða í bæklingnum sem kom með eldavélinni og sá þá að ofnin er ekki með sjálfhreinsibúnaði. Mér hafði ekki einu sinni dottið í hug að kíkja eftir því í búðinni, þar sem ég helt að þetta væri alveg standard á öllum eldavélum í dag. Og þá sérstaklega í eldavél sem er með glerhelluborði sem maður kaupir því að það er gott að þrífa svoleiðis, ekki eins og þetta gormadrasl sem er svo vinsælt hér í Bandaríkjunum. Bret hló bara af mér þegar ég var að kvarta og sagði mér að hann ætlaði sko ekki að þrífa ofnin.

Þegar húsið er komið í stand þá tek ég og set inn myndir.