
Þarna er viftan eins og hún var í stofunni. Við tókum hana niður og settum flotta nýja viftu í staðinn, hún er meira að segja með fjarstýringu. Ég sprey málaði svo gömlu viftuna til að gera hana flottari, og ég er bara nokkuð ánægð með árangurinn. Svo tókum við bleyku viftuna niður úr eldhúsinu og settum þessa þar í staðin.

Þarna erum við búin að skipta um eldavél og örbylgjuofn. Við erum að spá í að hækka eldhús skápana þar sem þeir eru frekar lágir. Ég sprey málaði líka handföngin á skápunum. Ég er ekkert að fíla allt þetta gull litaða sem er út um allt.

Flotti nýji ískápurinn minn. Hann er alveg frábær. Það er alveg rosalega gott filter í honum fyrir vatn, svo að það er drekkandi núna. Vatnið í þessum bæ er eins og mold á bragðið og á lyktin líka, alger vibbi. Uppþvottavélin sker sig alveg úr, þarf sko að fá nýja svoleiðis. Þessi þvær nú ekkert rosavel og þarf að skola allt vel áður en sett er í hana.

Ég var í prófi í reikning um dagin og fékk 90 af 100 stigum. Ég er alveg rosalega montin, ég held sko að þetta sé bara hæðsta einkuninn sem ég hef fengið fyrir reikning á ævinni. En ég verð víst að halda áfram að læra þarf að taka próf í Fine Arts í dag, og svo fer ég í sálfræði tíma á eftir, þar sem verður talað um unglinga. Það er víst best að læra allt um þá svo að ég viti betur hvað hún litla Gipsy er að hugsa.
Annars missti ég alveg andlitið í gær. Mamma vinkonu hennar Gipsy trompaðist þegar dóttir hennar hætti með kærastanum sínum, mömmuni leist svo vel á hann að hún taldi hann vera þann eina sanna fyrir dóttur sína, og hún "grounded" hana fyrir að hætta með honum. Pældu bara í þessu stelpan er 13 ára, og mamman vill að hún bara bindi sig niður. Svo Gipsy spurði hvort við mundum gera þetta líka ef okkur líkað kærastinn hennar. Ég sagði nú bara nei, og að ég mundi nú gera ráð fyrir að hún mundi nú kannski eiga nokkra kærasta áður en hún veldi einvern til að eyða ævinni með.
1 ummæli:
OMG hvað er að þessari kellu, að setja stelpuna í straff af því hún hætti með kærastanum.... díses það þyrfti að setja hana í straff frekar!!
Þetta er voða flott sem þú hefur gert. Já ég veit sko hvað það er að rífa veggfóður....algjör martröð!
Ég segi bara Have Fun hehehe.
kv. frá Illinois
Skrifa ummæli