sunnudagur, nóvember 16, 2008

TIl Hamingju með Afmælið Fía Mín

Nú er ég nú loksins búin að fá Macbókina úr viðgerð. Þrátt fyrir að tölvan hafi verið komin úr ábyrgð fyrir þó nokkru síðan, þá var bara gert við tölvuna frítt og svo var henni bara skuttlað í póstin til mín og það frítt líka. Ég held nú að það hafi verið einhver galli á hörðu diskunum sem þeir voru að nota á einhverju tímabili, og að það sé ástæðan fyrir ókeypis viðgerð. Skoðaði þetta nú aðeins á netinu og jú það var nú einhvað vandamál, og reyndar svo slæmt að það er yfirleitt ekki hægt að endurheimta gögnin sem töpuðust. Og það kostar nú ekkert smá heldur, það getur alveg farið upp í þúsund dollara.

En mér finnst það alveg frábært að vera ekki föst við skrifborð lengur. Það versta var við þessa bilun náttúrulega að við glötuðum alveg fullt af myndum og svo tapaði ég alveg dúbíu af ritgerðum.

Skólin er mikið að stressa mig þessa dagana, og ég var voðalega ánægð að fá eina viku í frí yfir þakkargerðarhátíðina hér. En sú hamingja entist ekki lengi, ég fór nú að skoða verkefnin og þarf að skila af mér þó nokkrum ritgerðum svo að þetta verður nú ekki mikið frí hjá mér.

Svo fór ég að láta skrá mig á næstu önn á föstudaginn. Ég verð í Chemistry og í Algebru, ekki mikið sem ég get tekið. Í sumar tek ég svo Finite Math, veit ekki alveg hvernig reikningur það er en ég kemst að því. Svo þarf ég að sækja um undanþágu til að geta byrjað í clinical náminu í haust, því að ég verð að sækja um það í vor og á þá að vera búin með allan reikning.

Við fórum að leigja okkur DVD á Blockbusters um dagin og þar sá ég myndina Jar City eða Mýrin eins og hún heitir á Íslensku. Nú auðvitað greip ég hana strax og tilkynnti mínum manni hvað við mundum vera að horfa á það kvöldið. Mér fannst myndin bara nokkuð góð, var pirruð yfir þýðingunni stundum. Það eina sem ég var ekki sátt við var tónlistin í myndinni, hún var alveg agalega niðurdrepandi.

Bestu afmæliskveðjur til hennar Ottý systur minnar, hún er orðin 50 ára gömul. Vá! Alger elli smellur...

Engin ummæli: