sunnudagur, nóvember 16, 2008

TIl Hamingju með Afmælið Fía Mín

Nú er ég nú loksins búin að fá Macbókina úr viðgerð. Þrátt fyrir að tölvan hafi verið komin úr ábyrgð fyrir þó nokkru síðan, þá var bara gert við tölvuna frítt og svo var henni bara skuttlað í póstin til mín og það frítt líka. Ég held nú að það hafi verið einhver galli á hörðu diskunum sem þeir voru að nota á einhverju tímabili, og að það sé ástæðan fyrir ókeypis viðgerð. Skoðaði þetta nú aðeins á netinu og jú það var nú einhvað vandamál, og reyndar svo slæmt að það er yfirleitt ekki hægt að endurheimta gögnin sem töpuðust. Og það kostar nú ekkert smá heldur, það getur alveg farið upp í þúsund dollara.

En mér finnst það alveg frábært að vera ekki föst við skrifborð lengur. Það versta var við þessa bilun náttúrulega að við glötuðum alveg fullt af myndum og svo tapaði ég alveg dúbíu af ritgerðum.

Skólin er mikið að stressa mig þessa dagana, og ég var voðalega ánægð að fá eina viku í frí yfir þakkargerðarhátíðina hér. En sú hamingja entist ekki lengi, ég fór nú að skoða verkefnin og þarf að skila af mér þó nokkrum ritgerðum svo að þetta verður nú ekki mikið frí hjá mér.

Svo fór ég að láta skrá mig á næstu önn á föstudaginn. Ég verð í Chemistry og í Algebru, ekki mikið sem ég get tekið. Í sumar tek ég svo Finite Math, veit ekki alveg hvernig reikningur það er en ég kemst að því. Svo þarf ég að sækja um undanþágu til að geta byrjað í clinical náminu í haust, því að ég verð að sækja um það í vor og á þá að vera búin með allan reikning.

Við fórum að leigja okkur DVD á Blockbusters um dagin og þar sá ég myndina Jar City eða Mýrin eins og hún heitir á Íslensku. Nú auðvitað greip ég hana strax og tilkynnti mínum manni hvað við mundum vera að horfa á það kvöldið. Mér fannst myndin bara nokkuð góð, var pirruð yfir þýðingunni stundum. Það eina sem ég var ekki sátt við var tónlistin í myndinni, hún var alveg agalega niðurdrepandi.

Bestu afmæliskveðjur til hennar Ottý systur minnar, hún er orðin 50 ára gömul. Vá! Alger elli smellur...

miðvikudagur, október 29, 2008

Nokkrar Myndir

Jæja þá hefur maður það loksins af að setja inn nokkrar myndir. Það er svo mikið að gera í skólanum hjá mér að ég má varla vera að því að gera það sem þarf að gera. Ég er byrjuð að rífa niður veggfóðrið í skrifstofunni, það er nú ekkert smá mál. Þegar veggfóðrið var sett á veggina þá var ekkert verið að hafa fyrir því að grunna fyrst, nei veggfóðrinu var bara skellt beint á ótilbúinn vegginn. Svo að veggfóðrið er mikið til pikkfast og svo þegar maður nær að rífa einhvað þá kemur hluti af veggnum með. Svo erum við að spá í að setja þennan lit á veggin, hann heitir Sorbit. Annars erum við ekkert svo ástfangin af litnum þegar við settum smá á vegginn. Bret vill hafa hann bjartari semsé ljós gulan... Ég vill hins vegar hafa hann aðeins dekkri og aðeins meira út í brúnt. Vill einhvað hlutlaust en ekki hvítt. Við málum kannski nokkrum sinnum áður en við sættumst á einhvern lit.


Þarna er viftan eins og hún var í stofunni. Við tókum hana niður og settum flotta nýja viftu í staðinn, hún er meira að segja með fjarstýringu. Ég sprey málaði svo gömlu viftuna til að gera hana flottari, og ég er bara nokkuð ánægð með árangurinn. Svo tókum við bleyku viftuna niður úr eldhúsinu og settum þessa þar í staðin.


Þarna erum við búin að skipta um eldavél og örbylgjuofn. Við erum að spá í að hækka eldhús skápana þar sem þeir eru frekar lágir. Ég sprey málaði líka handföngin á skápunum. Ég er ekkert að fíla allt þetta gull litaða sem er út um allt.

Flotti nýji ískápurinn minn. Hann er alveg frábær. Það er alveg rosalega gott filter í honum fyrir vatn, svo að það er drekkandi núna. Vatnið í þessum bæ er eins og mold á bragðið og á lyktin líka, alger vibbi. Uppþvottavélin sker sig alveg úr, þarf sko að fá nýja svoleiðis. Þessi þvær nú ekkert rosavel og þarf að skola allt vel áður en sett er í hana.


Ég var í prófi í reikning um dagin og fékk 90 af 100 stigum. Ég er alveg rosalega montin, ég held sko að þetta sé bara hæðsta einkuninn sem ég hef fengið fyrir reikning á ævinni. En ég verð víst að halda áfram að læra þarf að taka próf í Fine Arts í dag, og svo fer ég í sálfræði tíma á eftir, þar sem verður talað um unglinga. Það er víst best að læra allt um þá svo að ég viti betur hvað hún litla Gipsy er að hugsa.

Annars missti ég alveg andlitið í gær. Mamma vinkonu hennar Gipsy trompaðist þegar dóttir hennar hætti með kærastanum sínum, mömmuni leist svo vel á hann að hún taldi hann vera þann eina sanna fyrir dóttur sína, og hún "grounded" hana fyrir að hætta með honum. Pældu bara í þessu stelpan er 13 ára, og mamman vill að hún bara bindi sig niður. Svo Gipsy spurði hvort við mundum gera þetta líka ef okkur líkað kærastinn hennar. Ég sagði nú bara nei, og að ég mundi nú gera ráð fyrir að hún mundi nú kannski eiga nokkra kærasta áður en hún veldi einvern til að eyða ævinni með.

fimmtudagur, október 02, 2008

Þvílík Hamingja

Það hafðist loksins af að fá húsið okkar afhent. Við fluttum inn á föstudagskvöld, og vorum svo að sækja dótið okkar smám saman yfir helgina. Svo fengum svo hjálp á mánudaginn við að flytja restina.

Ég þarf að drífa af lærdómin svo að ég geti rifið upp úr kössunum. Ég á að vera búin að taka próf í ensku fyrir sunnudagskvöld svo að ég er að reyna að lesa fyrir það próf. Svolítið skrítið ég er ekki vön að taka enskupróf með spurningum, venjulega þarf maður að skrifa ritgerð.

Stelpurnar og Bret eru alveg alsæl með sundlaugina og hoppa ofan í hana daglega. Ég hins vegar bara horfi á þau leika sér þar sem ég er svo mikil kuldaskræfa og vatnið er ískalt.

Nýji ískápurinn, eldavélin og örbylgjuofnin taka sig vel út í eldhúsinu. Maður neyðist seinna til að skipta um uppþvottavél líka þar sem sú sem var í húsinu er hvít og passar ekki við nýju hlutina. Annars varð ég rosalega skúffuð þegar ég var að skoða í bæklingnum sem kom með eldavélinni og sá þá að ofnin er ekki með sjálfhreinsibúnaði. Mér hafði ekki einu sinni dottið í hug að kíkja eftir því í búðinni, þar sem ég helt að þetta væri alveg standard á öllum eldavélum í dag. Og þá sérstaklega í eldavél sem er með glerhelluborði sem maður kaupir því að það er gott að þrífa svoleiðis, ekki eins og þetta gormadrasl sem er svo vinsælt hér í Bandaríkjunum. Bret hló bara af mér þegar ég var að kvarta og sagði mér að hann ætlaði sko ekki að þrífa ofnin.

Þegar húsið er komið í stand þá tek ég og set inn myndir.

mánudagur, september 22, 2008

Þetta Gengur Ekki Lengur

Við búum núna í trailer á vellinum, það var orðið svo stressandi að búa á hótelinu. Það var altaf svo fullbókað hjá þeim að maður vissi ekki hvort maður yrði að vera komin út af herberginu fyrir 11 um morgunin eða hvort einhver afpantaði og maður fékk eina nótt í viðbót.

Í síðustu viku sagði bankinn okkar að allur húsnæðispakkinn yrði sendur frá Texas til Louisiana þar sem það var enn rafmagnslaust í Texas. Okkur var lofað að all færi á stað á mánudagsmorgum sem var núna í morgum og við ættum að geta tekið við og flutt á miðvikudag eða fimmtudag. Þegar Bret hafði svo samband við þá um hádegið í dag, þá vissi engin neitt og Bret sagði þeim þá að hoppa upp í sinn óæðri enda og skella í lás á eftir sér. Jæja, hann hugsaði það að minsta kosti, svo að við erum búin að skipta um banka. Þetta var alveg fáranlegt sífeldar tafir hjá þeim, og við á stöðugu flakki á meðan. Svo að við ættum vonandi að vera að flytja eftir viku, það getur ekki verið að allir séu vonlausir hér í að ganga frá svona bankamálum hér.

Það er mikið að gera í skólanum hjá mér. Þurfti að skrifa 2 ritgerðir fyrir enskuna, svo var próf í reikning í morgum og svo í sálfræði á miðvikudaginn. Svo þarf ég að skila inn verkefni fyrir List og svo taka próf í því fagi líka í vikunni, plús tonn að lestri fyrir enskuna. Get ekki beðið eftir að helgin komi svo að maður geti náð andanum.

fimmtudagur, september 11, 2008

Ef það er ekki eitt þá er það einhvað annað!

Það er fellibylur á leiðinni til Texas. Fellibylurinn veldur því að við getum ekki flutt inn í húsið fyrr en eftir helgi. Þar sem bankinn sem við erum með húsnæðislánið í gegnum er staðsettur í Huston Texas. Það er verið að flytja allt fólk frá því svæði og loka öllum fyrirtækjum. Enn eitt vandamálið með þetta blessaða hús okkar. Meira að segja veðurguðirnir eru á móti okkur...

Hótelið sem við erum á sagði að við yrðum að flytja á morgum þar sem að við vorum ekki búin að sækja um að vera lengur og hótelið er fullbókað út af fellibylnum. Sem sé mikið af fólki frá Texas er að koma hingað. Sem auðvitað þýðir líka að flest öll hótelin eru fullbókuð, fann eitt hótel sem var með pláss á föstudag, sunnudag og mánudag, ekkert á laugardaginn, verðið þar 150 dollarar á nótt.
Fórum niður í afgreiðsluna bara til að athuga hvort einhvað hefði verið afpantað og okkur var sagt nei. Vorum við það að labba út þegar símin hringdi og einhver afpantaði nokkur herbergi, hjúkk við fáum að vera fram á þriðjudag hér. Og ef við getum ekki flutt á þriðjudaginn þá þarf ég að fara til læknis og fá einhvað róandi fyrir mig og restina af fjölskyldunni minni.

Fórum svo út í búð til að láta seinka aftur heimsendingunni af ískápnum, eldavélinni, örbylgju ofninum, þvottavélinni og þurkaranum.

miðvikudagur, september 10, 2008

When it Rains it Pours

Tölvan mín er biluð. Svo sannarlega var þetta ekki besti tímin fyrir tölvuna að klikka hjá mér. Sérstaklega þegar maður er í tveim fögum á netinu, og þarf stöðugt að vera að pikka einhvað. Það eina sem kemur upp þegar ég kveiki á tölvunni er grár skjár með blikkandi möppu í miðjunni með spurningarmerki. Ég er að vonast til að einhvað forrit hafi klikkað svo að maður ætti að geta sett inn Leopard diskin til að laga tölvuna. Í versta falli klikkaði harði diskurinn, og það væri ekki gott. Allt sem ég er búin að gera í skólanum, allar ritgerðir og þess háttar væri glatað. Líka allar myndirnar sem við erum búin að taka síðan áður en við fórum frá Hawaii væru líka farnar. PIRRR!!!!

Sem betur fer virkar fartölvan hennar Cheyenne svo að maður hefur að minsta kosti tölvu þar til að við flytjum í húsið okkar.

Því miður erum við ekki flutt ennþá. Búum ennþá á hóteli á vellinum. Eins og málin standa í dag þá flytjum við á föstudaginn, og vonandi breytist það ekki. Það er búið að flísaleggja, og það er byrjað að tæma alveg sundlaugina. Laugin ætti að vera komin alveg í gagnið á fimmtudagin, ætli krakkarnir hoppi ekki út í og leiki sér þrátt fyrir að vatnið verði ískalt. Það á líka að laga loftkælinguna, átti að vera löguð á mánudagin en í gær var ekki búið að laga hana ennþá.

Þegar ég var í leiðinni í skólan í gær þá bara sprakk eitt dekkið. Ég var ennþá á herstöðinni svo að ég hringdi í Bret og bað hann að koma og skipta um dekkið fyrir mig. Ég hefði svosem alveg getað gert það sjálf, en hann er bara mikið klárari þegar kemur að bílamálum.

Ég gat ekki mætt í skólan, og það var algert stress þar sem okkur var sagt að ef við mistum af tveim tímum í Orientation þá fengum við sjálfkrafa F í einkunn. Ég hringdi upp í skóla og mér var sagt að ég gæti mætt klukkan fjögur þar sem kennarinn var að kenna sama tíman aftur.

miðvikudagur, ágúst 27, 2008

Enska á netinu

Skólin er öðruvísi hér en maður var búin að venjast frá Hawaii. Á Hawaii voru flestir löngu búnir í gaggó, en hér eru flestir nýkomnir úr gaggó svo að maður er bara alger ellismellur. Hér kynna kennararnir sig og svo fagið sem þeir kenna, ekki eins og á Hawaii þar sem allur bekkurinn þurfti að kynna sig.

Ég mætti í enskutíma i gær, skólastofan var bara mikið til tóm. Þegar kennarin kom sagði hún að það væri búið að aflýsa þessum enskutíma þar sem það var ekki nóg þáttaka. Í boði stóð að taka þennan tíma mánudaga og miðvikudaga, eða þriðjudaga og fimmtudaga, eða á netinu. Svo að ég áhvað að taka þetta bara á netinu.

Í dag fer ég í sálfræði tíma sem er vonandi með næga þáttöku. Og svo á morgum reyni ég sennilega að gera allan heimalærdóm.

Á mánudagin er Labor Day - Frídagur verkafólksins eða einhvað álíka. Það verður frí í skólanum hjá mér og hjá Bret í vinnunni. En það verður víst ekki frí í barnaskólunum hér, furðulegt. Stærfræði kennarinn minn kennir líka í gaggó og hún er frekar fúl yfir að fá ekki frídaginn sinn. Eiginlega er ég ekki alveg að fatta af hverju þetta var ákveðið, það er svo oft sem fjölskyldur skreppa einhvað á svona 3ja daga helgi.