sunnudagur, nóvember 16, 2008

TIl Hamingju með Afmælið Fía Mín

Nú er ég nú loksins búin að fá Macbókina úr viðgerð. Þrátt fyrir að tölvan hafi verið komin úr ábyrgð fyrir þó nokkru síðan, þá var bara gert við tölvuna frítt og svo var henni bara skuttlað í póstin til mín og það frítt líka. Ég held nú að það hafi verið einhver galli á hörðu diskunum sem þeir voru að nota á einhverju tímabili, og að það sé ástæðan fyrir ókeypis viðgerð. Skoðaði þetta nú aðeins á netinu og jú það var nú einhvað vandamál, og reyndar svo slæmt að það er yfirleitt ekki hægt að endurheimta gögnin sem töpuðust. Og það kostar nú ekkert smá heldur, það getur alveg farið upp í þúsund dollara.

En mér finnst það alveg frábært að vera ekki föst við skrifborð lengur. Það versta var við þessa bilun náttúrulega að við glötuðum alveg fullt af myndum og svo tapaði ég alveg dúbíu af ritgerðum.

Skólin er mikið að stressa mig þessa dagana, og ég var voðalega ánægð að fá eina viku í frí yfir þakkargerðarhátíðina hér. En sú hamingja entist ekki lengi, ég fór nú að skoða verkefnin og þarf að skila af mér þó nokkrum ritgerðum svo að þetta verður nú ekki mikið frí hjá mér.

Svo fór ég að láta skrá mig á næstu önn á föstudaginn. Ég verð í Chemistry og í Algebru, ekki mikið sem ég get tekið. Í sumar tek ég svo Finite Math, veit ekki alveg hvernig reikningur það er en ég kemst að því. Svo þarf ég að sækja um undanþágu til að geta byrjað í clinical náminu í haust, því að ég verð að sækja um það í vor og á þá að vera búin með allan reikning.

Við fórum að leigja okkur DVD á Blockbusters um dagin og þar sá ég myndina Jar City eða Mýrin eins og hún heitir á Íslensku. Nú auðvitað greip ég hana strax og tilkynnti mínum manni hvað við mundum vera að horfa á það kvöldið. Mér fannst myndin bara nokkuð góð, var pirruð yfir þýðingunni stundum. Það eina sem ég var ekki sátt við var tónlistin í myndinni, hún var alveg agalega niðurdrepandi.

Bestu afmæliskveðjur til hennar Ottý systur minnar, hún er orðin 50 ára gömul. Vá! Alger elli smellur...

miðvikudagur, október 29, 2008

Nokkrar Myndir

Jæja þá hefur maður það loksins af að setja inn nokkrar myndir. Það er svo mikið að gera í skólanum hjá mér að ég má varla vera að því að gera það sem þarf að gera. Ég er byrjuð að rífa niður veggfóðrið í skrifstofunni, það er nú ekkert smá mál. Þegar veggfóðrið var sett á veggina þá var ekkert verið að hafa fyrir því að grunna fyrst, nei veggfóðrinu var bara skellt beint á ótilbúinn vegginn. Svo að veggfóðrið er mikið til pikkfast og svo þegar maður nær að rífa einhvað þá kemur hluti af veggnum með. Svo erum við að spá í að setja þennan lit á veggin, hann heitir Sorbit. Annars erum við ekkert svo ástfangin af litnum þegar við settum smá á vegginn. Bret vill hafa hann bjartari semsé ljós gulan... Ég vill hins vegar hafa hann aðeins dekkri og aðeins meira út í brúnt. Vill einhvað hlutlaust en ekki hvítt. Við málum kannski nokkrum sinnum áður en við sættumst á einhvern lit.


Þarna er viftan eins og hún var í stofunni. Við tókum hana niður og settum flotta nýja viftu í staðinn, hún er meira að segja með fjarstýringu. Ég sprey málaði svo gömlu viftuna til að gera hana flottari, og ég er bara nokkuð ánægð með árangurinn. Svo tókum við bleyku viftuna niður úr eldhúsinu og settum þessa þar í staðin.


Þarna erum við búin að skipta um eldavél og örbylgjuofn. Við erum að spá í að hækka eldhús skápana þar sem þeir eru frekar lágir. Ég sprey málaði líka handföngin á skápunum. Ég er ekkert að fíla allt þetta gull litaða sem er út um allt.

Flotti nýji ískápurinn minn. Hann er alveg frábær. Það er alveg rosalega gott filter í honum fyrir vatn, svo að það er drekkandi núna. Vatnið í þessum bæ er eins og mold á bragðið og á lyktin líka, alger vibbi. Uppþvottavélin sker sig alveg úr, þarf sko að fá nýja svoleiðis. Þessi þvær nú ekkert rosavel og þarf að skola allt vel áður en sett er í hana.


Ég var í prófi í reikning um dagin og fékk 90 af 100 stigum. Ég er alveg rosalega montin, ég held sko að þetta sé bara hæðsta einkuninn sem ég hef fengið fyrir reikning á ævinni. En ég verð víst að halda áfram að læra þarf að taka próf í Fine Arts í dag, og svo fer ég í sálfræði tíma á eftir, þar sem verður talað um unglinga. Það er víst best að læra allt um þá svo að ég viti betur hvað hún litla Gipsy er að hugsa.

Annars missti ég alveg andlitið í gær. Mamma vinkonu hennar Gipsy trompaðist þegar dóttir hennar hætti með kærastanum sínum, mömmuni leist svo vel á hann að hún taldi hann vera þann eina sanna fyrir dóttur sína, og hún "grounded" hana fyrir að hætta með honum. Pældu bara í þessu stelpan er 13 ára, og mamman vill að hún bara bindi sig niður. Svo Gipsy spurði hvort við mundum gera þetta líka ef okkur líkað kærastinn hennar. Ég sagði nú bara nei, og að ég mundi nú gera ráð fyrir að hún mundi nú kannski eiga nokkra kærasta áður en hún veldi einvern til að eyða ævinni með.

fimmtudagur, október 02, 2008

Þvílík Hamingja

Það hafðist loksins af að fá húsið okkar afhent. Við fluttum inn á föstudagskvöld, og vorum svo að sækja dótið okkar smám saman yfir helgina. Svo fengum svo hjálp á mánudaginn við að flytja restina.

Ég þarf að drífa af lærdómin svo að ég geti rifið upp úr kössunum. Ég á að vera búin að taka próf í ensku fyrir sunnudagskvöld svo að ég er að reyna að lesa fyrir það próf. Svolítið skrítið ég er ekki vön að taka enskupróf með spurningum, venjulega þarf maður að skrifa ritgerð.

Stelpurnar og Bret eru alveg alsæl með sundlaugina og hoppa ofan í hana daglega. Ég hins vegar bara horfi á þau leika sér þar sem ég er svo mikil kuldaskræfa og vatnið er ískalt.

Nýji ískápurinn, eldavélin og örbylgjuofnin taka sig vel út í eldhúsinu. Maður neyðist seinna til að skipta um uppþvottavél líka þar sem sú sem var í húsinu er hvít og passar ekki við nýju hlutina. Annars varð ég rosalega skúffuð þegar ég var að skoða í bæklingnum sem kom með eldavélinni og sá þá að ofnin er ekki með sjálfhreinsibúnaði. Mér hafði ekki einu sinni dottið í hug að kíkja eftir því í búðinni, þar sem ég helt að þetta væri alveg standard á öllum eldavélum í dag. Og þá sérstaklega í eldavél sem er með glerhelluborði sem maður kaupir því að það er gott að þrífa svoleiðis, ekki eins og þetta gormadrasl sem er svo vinsælt hér í Bandaríkjunum. Bret hló bara af mér þegar ég var að kvarta og sagði mér að hann ætlaði sko ekki að þrífa ofnin.

Þegar húsið er komið í stand þá tek ég og set inn myndir.

mánudagur, september 22, 2008

Þetta Gengur Ekki Lengur

Við búum núna í trailer á vellinum, það var orðið svo stressandi að búa á hótelinu. Það var altaf svo fullbókað hjá þeim að maður vissi ekki hvort maður yrði að vera komin út af herberginu fyrir 11 um morgunin eða hvort einhver afpantaði og maður fékk eina nótt í viðbót.

Í síðustu viku sagði bankinn okkar að allur húsnæðispakkinn yrði sendur frá Texas til Louisiana þar sem það var enn rafmagnslaust í Texas. Okkur var lofað að all færi á stað á mánudagsmorgum sem var núna í morgum og við ættum að geta tekið við og flutt á miðvikudag eða fimmtudag. Þegar Bret hafði svo samband við þá um hádegið í dag, þá vissi engin neitt og Bret sagði þeim þá að hoppa upp í sinn óæðri enda og skella í lás á eftir sér. Jæja, hann hugsaði það að minsta kosti, svo að við erum búin að skipta um banka. Þetta var alveg fáranlegt sífeldar tafir hjá þeim, og við á stöðugu flakki á meðan. Svo að við ættum vonandi að vera að flytja eftir viku, það getur ekki verið að allir séu vonlausir hér í að ganga frá svona bankamálum hér.

Það er mikið að gera í skólanum hjá mér. Þurfti að skrifa 2 ritgerðir fyrir enskuna, svo var próf í reikning í morgum og svo í sálfræði á miðvikudaginn. Svo þarf ég að skila inn verkefni fyrir List og svo taka próf í því fagi líka í vikunni, plús tonn að lestri fyrir enskuna. Get ekki beðið eftir að helgin komi svo að maður geti náð andanum.

fimmtudagur, september 11, 2008

Ef það er ekki eitt þá er það einhvað annað!

Það er fellibylur á leiðinni til Texas. Fellibylurinn veldur því að við getum ekki flutt inn í húsið fyrr en eftir helgi. Þar sem bankinn sem við erum með húsnæðislánið í gegnum er staðsettur í Huston Texas. Það er verið að flytja allt fólk frá því svæði og loka öllum fyrirtækjum. Enn eitt vandamálið með þetta blessaða hús okkar. Meira að segja veðurguðirnir eru á móti okkur...

Hótelið sem við erum á sagði að við yrðum að flytja á morgum þar sem að við vorum ekki búin að sækja um að vera lengur og hótelið er fullbókað út af fellibylnum. Sem sé mikið af fólki frá Texas er að koma hingað. Sem auðvitað þýðir líka að flest öll hótelin eru fullbókuð, fann eitt hótel sem var með pláss á föstudag, sunnudag og mánudag, ekkert á laugardaginn, verðið þar 150 dollarar á nótt.
Fórum niður í afgreiðsluna bara til að athuga hvort einhvað hefði verið afpantað og okkur var sagt nei. Vorum við það að labba út þegar símin hringdi og einhver afpantaði nokkur herbergi, hjúkk við fáum að vera fram á þriðjudag hér. Og ef við getum ekki flutt á þriðjudaginn þá þarf ég að fara til læknis og fá einhvað róandi fyrir mig og restina af fjölskyldunni minni.

Fórum svo út í búð til að láta seinka aftur heimsendingunni af ískápnum, eldavélinni, örbylgju ofninum, þvottavélinni og þurkaranum.

miðvikudagur, september 10, 2008

When it Rains it Pours

Tölvan mín er biluð. Svo sannarlega var þetta ekki besti tímin fyrir tölvuna að klikka hjá mér. Sérstaklega þegar maður er í tveim fögum á netinu, og þarf stöðugt að vera að pikka einhvað. Það eina sem kemur upp þegar ég kveiki á tölvunni er grár skjár með blikkandi möppu í miðjunni með spurningarmerki. Ég er að vonast til að einhvað forrit hafi klikkað svo að maður ætti að geta sett inn Leopard diskin til að laga tölvuna. Í versta falli klikkaði harði diskurinn, og það væri ekki gott. Allt sem ég er búin að gera í skólanum, allar ritgerðir og þess háttar væri glatað. Líka allar myndirnar sem við erum búin að taka síðan áður en við fórum frá Hawaii væru líka farnar. PIRRR!!!!

Sem betur fer virkar fartölvan hennar Cheyenne svo að maður hefur að minsta kosti tölvu þar til að við flytjum í húsið okkar.

Því miður erum við ekki flutt ennþá. Búum ennþá á hóteli á vellinum. Eins og málin standa í dag þá flytjum við á föstudaginn, og vonandi breytist það ekki. Það er búið að flísaleggja, og það er byrjað að tæma alveg sundlaugina. Laugin ætti að vera komin alveg í gagnið á fimmtudagin, ætli krakkarnir hoppi ekki út í og leiki sér þrátt fyrir að vatnið verði ískalt. Það á líka að laga loftkælinguna, átti að vera löguð á mánudagin en í gær var ekki búið að laga hana ennþá.

Þegar ég var í leiðinni í skólan í gær þá bara sprakk eitt dekkið. Ég var ennþá á herstöðinni svo að ég hringdi í Bret og bað hann að koma og skipta um dekkið fyrir mig. Ég hefði svosem alveg getað gert það sjálf, en hann er bara mikið klárari þegar kemur að bílamálum.

Ég gat ekki mætt í skólan, og það var algert stress þar sem okkur var sagt að ef við mistum af tveim tímum í Orientation þá fengum við sjálfkrafa F í einkunn. Ég hringdi upp í skóla og mér var sagt að ég gæti mætt klukkan fjögur þar sem kennarinn var að kenna sama tíman aftur.

miðvikudagur, ágúst 27, 2008

Enska á netinu

Skólin er öðruvísi hér en maður var búin að venjast frá Hawaii. Á Hawaii voru flestir löngu búnir í gaggó, en hér eru flestir nýkomnir úr gaggó svo að maður er bara alger ellismellur. Hér kynna kennararnir sig og svo fagið sem þeir kenna, ekki eins og á Hawaii þar sem allur bekkurinn þurfti að kynna sig.

Ég mætti í enskutíma i gær, skólastofan var bara mikið til tóm. Þegar kennarin kom sagði hún að það væri búið að aflýsa þessum enskutíma þar sem það var ekki nóg þáttaka. Í boði stóð að taka þennan tíma mánudaga og miðvikudaga, eða þriðjudaga og fimmtudaga, eða á netinu. Svo að ég áhvað að taka þetta bara á netinu.

Í dag fer ég í sálfræði tíma sem er vonandi með næga þáttöku. Og svo á morgum reyni ég sennilega að gera allan heimalærdóm.

Á mánudagin er Labor Day - Frídagur verkafólksins eða einhvað álíka. Það verður frí í skólanum hjá mér og hjá Bret í vinnunni. En það verður víst ekki frí í barnaskólunum hér, furðulegt. Stærfræði kennarinn minn kennir líka í gaggó og hún er frekar fúl yfir að fá ekki frídaginn sinn. Eiginlega er ég ekki alveg að fatta af hverju þetta var ákveðið, það er svo oft sem fjölskyldur skreppa einhvað á svona 3ja daga helgi.

miðvikudagur, ágúst 20, 2008

Æj þá byrjar skólin aftur

Jæja er loksins búin að skrá mig í hjúkrunarnám. Ég tek fimm áfanga þessa önnina, svo að ég ætti að vera vel stressuð. Byrja á mánudagin með algebru fyrir byrjendur, ég get ekki sagt að mig hlakki beint til að læra það fag.

Við búum ennþá á hóteli, og erum orðin vel pirruð á því. Það var einhvað klúður hjá VA með að ábyrgjast húsnæðislánið en þeir eru búnir að leiðrétta kerfið hjá sér. Svo að þetta tafði allt um rúma viku. Við ættum að fá afhent 5. September eða fyrr ef allt verður klárað. Seljandin á að laga sundlaugina og flísaleggja gólfin áður en við fáum húsið. Við erum að vonast eftir að það verði allt gert í næstu viku.

Þetta voru nú meiri subburnar sem bjuggu þarna í húsinu. Það er bara hörku djobb að þrífa allt. Allir eldhús skápar með olíuskám og klístraðir, eldavélin og örbylgjuofnin alger vibbi. Ég held nú bara að sturtan hafi aldrei verið skrúbbuð, það var svo mikil mygla á sturtuhurðinni og í sturtuklefanum að það hálfa væri nóg. Svo er líka teppi inni á baðherberginu sem er með stórum myglublettum fyrir framan sturtuna, halló er fólk ekki í lagi, maður setur ekki teppi á baðherbergis gólf.

Ég veit ekki alveg á hvaða lyfjum fólkið var, sem ákvað að setja veggfóður í húsið. Það má kannski vera að manneskjan sem valdi veggfóðrið hafi verið blind, eða jafnvel í einhverskonar leik, þar sem bundið var yfir augun á meðan á valinu stóð. Ég get svo sannarlega sagt að veggfóðrið er alger smekkleysa sem særir í manni augun. Það vantar bara Valla bróðir til að mála og gera fínt.

Annars verður þetta bara alveg rosalega flott þegar við erum búin að laga það sem laga þarf. Bret er alveg alsæll með að fá stóran 2ja bíla bílskúr. Stelpurnar alsælar með sundlaugina, og ég alsæl með að búa loksins í húsi sem er með góðu plássi (204 fermetrar). Erum meira segja með aukaherbergi fyrir ykkur sem dettur í hug að koma í heimsókn til okkar.

Jæja þarf að fara að sækja dömurnar. Þær taka skólastrætó til og frá skólanum við nýja húsið. En þar sem við erum á hóteli á herstöðinni þá þarf ég að skutlast þetta fram og til baka, sem væri kannski ekkert svo slæmt nema það er um 45 - 55 mínútur á milli skólastrætóana hjá stelpunum. En sem betur fer er þetta bara tímabundið, ættum að getta flutt fljótlega vonandi.

mánudagur, júlí 28, 2008

Hús

Vid keyptum hús í dag. Sjá myndir á myndasíðunni minni.

laugardagur, júlí 19, 2008

Komin til Louisiana

Eftir nokkra daga stopp í Missouri var ferðalaginu haldið áfram. Við stoppuðum í smá stund í Arkansas og heilsuðum upp á frændfólk Brets og líka afa hans og ömmu. Móðurbróðir hans Brets á hesta og litla Cheyenne var alveg rosalega spent að hitta þann frænda, eða öllu heldur hestana hans. Hún var nú hvergi smeik og fór bara inn fyrir girðinguna til að geta verið nærri hestunum og klappað þeim betur. Það var bara eins og hún hefði alist upp þar sem mikið er um hesta, svo var hún voða leið þegar ferðinni var haldið áfram.

Við búum á hóteli og erum mikið í húsnæðisleit þessa dagana. Erum ekki búin að finna hús ennþá, kannski finnum við draumahúsið á morgum. Nýrri húsin eru mjög skemmtileg að innan, en mínusin er að það eru engin tré í garðinum. Eldri húsin eru með góðum trjám, en mínusin þar er að það er allt svo gamaldags inni í húsunum. Kannski finnum við einhvern milliveg, það er svo mikið af húsum til sölu hér.

Í gær skoðuðum við hús sem var rosalega flott að utan, með alveg dúbíu af gróðri, gosbrunnum, fiskum, skjaldbökum og stígum. Það tekur sennilega nokkuð marga klukkutíma í hverri viku að viðhalda öllum plöntunum. Húsið var nokkuð athyglisvert að innan. Það bjó eldri maður þar (sem á sennilega ekki langt eftir) og sonur hans. Það var frekar krípý að ganga um húsið þar sem það voru vefmyndavélar út um allt húsið, og líka tonn af tölvum og þess háttar dóti. Húsið var frekar gamaldags að innan, allar hurðarnar voru rennihurðar, og veggirnir voru í öllum regnbogans litum. Baðherbergið var síðan sautjánhundruð og súrkál með bláum flísum... Eldavélin var það besta í húsinu enda splunkuný.

í dag þurftum við að keyra til Dallas í Texas. Bret hafði keypt handa mér síma þegar við vorum í Missouri, og við þurftum svo að skila honum því að T-mobile virkar bara ekkert á þessu svæði. Og það er ekki einu sinni T-mobile búð hér sem við gátum skilað símanum til. Það var nú frekar pirrandi að þurfa að keyra í 3 klukkutíma til að skila einum síma, en hann var dýr svo að maður varð nú að fá peningin til baka og skipta um síma fyrirtæki. Nú erum við öll komin með ný símanúmer frá AT&T, sendu mér e-mail ef þú vilt númerið. Svo splæstum við Bret á okkur iphones.

mánudagur, júlí 07, 2008

Í Missouri

Við keyrðum til Missouri í gær og það er heitt þar, rosalega heitt. Ég held bara að ég sé alveg að bráðna. Kisan okkar var alveg rosalega ánægð að sjá okkur aftur. Ég hélt kannski að hún mundi vera í fílu út í okkur en hún bara faðmaði okkur og gaf okkur kisu kossa.

Við ætlum að fara í bílabíó í kvöld. Jibbý!!! Ég er búin að bíða eftir að komast í svoleiðis í mörg ár. Ég veit ekki alveg hvaða myndir við sjáum en þær ættu að vera góðar. það eru altaf sýndar tvær nýjar bíómyndir.

Þetta ferðalag á okkur er sko alls ekki gott fyrir mittið á mér. Maður er stöðugt borðandi á skyndibita stöðum í allar máltíðir. Það verður sko gott þegar maður kemst heim hvar sem það verður og fær eldavél og ískáp. Og svo auðvitað hlaupabrautina.

Endilega kíkið á nýju myndirnar sem ég var að setja inn.

þriðjudagur, júlí 01, 2008

Las Vegas

Við lentum í Los Angeles snemma í morgun, um klukkustund á undan áætlun. Það fyrsta sem ég tók eftir þegar við gengum út úr flugstöðinni var óþefur sem lyktaði eins og ruslatunna. OJ! Ekki alveg eins og maður er vanur í Hawaii sem lyktaði oftast af blómum.

Við tókum leigubíl til að sækja bílin okkar. Og þar sem klukkan var bara sex að morgni og staðurinn opnaði ekki fyrr en átta. Þá þurfum við að hanga og bíða í tvo klukkutíma. Úff og það var ekki einu sinni bensínstöð eða neitt álíka í nánd. Svo að maður gat ekki einu sinni keypt sér kaffi að drekka.

Keyrslan til Las Vegas var nú frekar erfið þar sem bæði ég og Bret vorum alveg grútsyfjuð eftir að geta ekki sofið í fluginu. Það endaði með því að við lögðum bílnum og reyndum að sofa í smá stund. Hitastigið í eyðimörkinni sem við keyrðum í gegn var um 107 gráður.

Um klukkan sjö í kvöld var hitastigið í Las Vegas 109 gráður. Það kólnar ekki mikið niður kvöldin, og það er eins og að maður opni sjóðheitan bakara ofnin og labbi beint inn í hann í hvert sinn sem maður fer út í hitan.

Við gistum á Circus Circus hótelinu í Las Vegas. Það er ágætis hótel, herbergið er stærra en á hótelinu sem við vorum á í Hawaii, nema bara engar svalir á þessu herbergi. Það er svo sem í góðu lagi þar sem við erum á tuttugustu og níundu hæðinni. Ég yrði sennilega bara alveg rosa lofthrædd þegar ég liti niður.

Við fórum með stelpurnar í smá skoðunarferð, þeim fannst þetta nú bara vera voða fínt hér. Gipsy man að vísu eftir síðustu heimsókn hingað en þetta var allt nýtt fyrir Cheyenne þar sem hún man ekkert frá síðustu heimsókn. Þær eru bara ekkert allt of hrifnar af hitanum. Bret sagði þeim bara að hitin hér væri fínn, og að hitin yrði agalegur í Louisiana það sem það er rosa raki þar.

mánudagur, júní 30, 2008

Ferðalag

Í dag er dagurin sem við flytjum í burt frá Hawaii. Ég væri sko alveg til í að taka veðráttuna með, því að ég mun sko sakna þess að hafa glampandi sól næstum alla daga ársins. Þrátt fyrir að við förum upp í flugvél bráðum þá finnst mér við ekkert vera að fara neitt.

Við vorum niður í bæ á Hale Koa Hótelinu í nokkra daga. Það var bara alveg ágætt að vera þar. Stelpurnar voru voðalega ánægðar með að leika sér í sundlauginni, og við Bret sátum á barnum og drukkum “tropical” drykki með ávöxtum og sólhlíf, namm….

Það var ágætt að geta loksins slappað af, það var ekkert lítið stress að reyna að pakka allri búslóðinni niður. Við settum allt inn í 12 metra langan gám og allt komst fyrir, við áttum meira að segja smá pláss eftir. Maðurinn minn var sko ekkert smá pirraður þegar hann var að reyna að raða öllu inn í gáminn. Hann var alveg alsæll nokkrum sinnum þegar hann hélt að allt væri komið inn og á réttan stað. En það var kassi hér og kassi þar sem þurfti að pakka og aumingja maðurinn minn var nú bara alveg að tapa glórunni þegar maður rétti honum meira dót. Hahaha…
Þegar gámurinn kemst svo á leiðarenda þá höfum við bara tvo klukkutíma til að tæma hann. Ef það tekur meira en tvo tíma að tæma gámin þá þurfum við að borga meiri pening.

Bíllinn okkar bíður svo eftir okkur í Los Angeles, Kalifornía. Við sækjum hann í fyrramálið og þá hefst okkar langi, langi ökutúr. Við ætlum að byrja á því að keyra til Las Vegas og gista þar yfir nótt, þaðan förum við að skoða miklagljúfrið eða The Grand Canion.

föstudagur, júní 06, 2008

Vinnan Göfgar Manninn...


Sem betur fer var föstudagur í dag. Þessi vika er búin að vera alger martröð. Það er búið að vera alveg brjálað að gera í vinnunni. Ég þurfti að útskrá í kring um 150 nemendur og það fylgir því mikil vinna. Og það var stöðug truflun frá foreldrum, nemendum, símtölum, og öðru starfsfólki. Plús að það var stöðugur straumur af fólki sem vildi skrá börnin í skólan. Kaupa boli og svo framvegis og svo framvegis…

Það er komin sjöundi júní og ekki hef ég nú komið miklu í verk heima hjá mér. Flutninga gámnum verður parkerað fyrir framan húsið hjá okkur eftir eina viku, og þá verður maður bara að vera rosa duglegur að pakka inn í hann. Við reynum svo sennilega að senda bílin okkar í þriðjudaginn. Svo að hann verði komin til Kaliforníu á undan okkur. Við ætlum sko að keyra þaðan til Louisiana. Bret kom loksins litla rauða sport kagganum á bílasölu, vonandi selst hann áður en við flytjum.

Við klárum svo skólan þann sextánda júní. Ég bíð sko óþolinmóð eftir að sleppa, er sko alveg að klepra á þessum reikningi. Svo innilega leiðinlegur og flókin. Einn nemandin kvartaði yfir hve nytjalaus þessi reikningur væri. Og kennarinn sagði að þetta væri nú bara helst til að þjálfa fólk í rök hugsun. Arg…

sunnudagur, maí 18, 2008

Smekkleysa

Sorg, helgin er búin. Vinnu vikan hefst að nýju í fyrramálið, alger sorg. Þessi helgi var sko nefnilega ekki alveg nógu löng, því að við bara gerðum alls ekkert af okkur. Skruppum aðeins upp í Wal-Mart að versla. Við fórum líka upp í BX til að skila skyrtu sem maðurinn minn keypti, ástæðan var sú að skyrtan var alger hörmung! Við fórum reyndar í bíó það kvöld sem hann hafði keypt skyrtuna og þá fékk ég algert hláturskast þegar einn þjónnin í myndini var í nákvæmlega sömu skyrtuni og Bret hafði keypt nema bara að skyrtan í myndinni var ljós blá. Aumingja maðurinn minn var alveg stórmóðgaður honum þótti skyrtan svo flott. Þegar ég skilaði henni í dag og var spurð af hverju ég væri að skila, þá sagði ég nú bara að það væri út af því að skyrtan væri svo rosalega ljót. Afgreiðslumaðurinn leit bara á skyrtuna og sagði ókey, og endurgreiddi mér peninginn. Ég varð líka alveg sjokkeruð yfir endurgreiðslunni og spurði bara mannin minn hvernig honum hefði dottið í hug að borga svona mikið fyrir einhvað svona ljótt.

Ég fór með Chey til læknisins á föstudagin því að henni var svo illt í hálsinum. Læknirinn taldi nú ekki að hún væri með strepkokka sýkingu, en tók sýni og sendi í rannsókn svo að við ættum að fá að vita á morgum hver niðurstaðan verður. Læknirinn vildi endilega prufa enn eitt lyf fyrir Chey, einvað nefsprey sem virkar ekki á ofnæmi heldur á taugakerfið. Hann sagði að stundum ef börn væru með ofvirk taugakerfi, þá ylli það stundum sömu einkennum og ofnæmi. Hún er búin að taka það í nokkra daga, vonandi virkar það, en ég efast samt um það. Hún er búin að prufa alveg tonn af lyfjum og ekkert hefur virkað hingað til.

Það er komin tími til að skríða upp í bæli. Góða nótt.

þriðjudagur, maí 13, 2008

Úff er ekki að koma helgi bráðum


Ég fór til tannlæknisins í morgum. Það þurfti að gera við skemmda tönn. Ég er sko ennþá að bíða eftir að einhver finni upp pillur við tannskemmdum. Það mundi sko gera lífið svo mikið minna stressað og þjáningafullt.

Ég sit hér að horfa á Bret og Cheyenne æfa sig í Tae Kwon Do. Þau eru voðalega dugleg. Gipsy litla er bara heima einhvað hálf slöpp.

Ég ætti að sitja heima og læra. Þarf að reikna alveg tonn fyrir næsta tíma, en sem betur fer verður frí í skólanum á mánudagin út af Memorial Day.

mánudagur, maí 05, 2008

Helgin

Japönsku Hjónin sem við hittum


Helgin hjá okkur var bara nokkuð góð. Við Bret fórum út að borða á föstudagskvöldið með vinafólki okkar. Við fórum á Japanskt steikhús sem heitir Benihana, maturinn var rosalega góður. Það sat Japönsk fjölskylda við borðið hjá okkur, Bret og Japanin voru að senda hvor öðrum drykki á meðan við vorum að borða. Þetta er nú ekki mynd af okkur en gefur smá hugmynd um hvernig maturinn okkar var eldaður.
Eftir matin þá fórum við í bíó. Í upphafi ætluðum við að sjá myndina Iron Man og keyptum reyndar miða á hana, en það voru um 100 manns í röð og engin sæti fyrir okkur 4 saman nema bara fremst í salnum. Svo að við ákváðum að sleppa hálsrígnum og bara að sjá einhvað annað í staðin. Hjónin sem voru með okkur vildu sjá Forgetting Sarah Marshall, mynd sem við vorum nú ekkert rosa spennt fyrir en létum okkur samt hafa það að sjá hana.
Aumingja Bret var komin með verki í magan þegar myndin var búin, hún var bara alveg spreng hlægileg. Ég mæli alveg pottþétt með að sjá þessa mynd, hún tekin upp hér á Hawaii. Ehemm, og svo var nú sýndur algerlega nakin karlmaður nokkrum sinnum, sem var nú alveg ágæt tilbreyting.
Laugardeginum eyddum við svo með Japönsku hjónunum sem við hittum á föstudagskvöldið. Bret vildi endilega fara með þau á Mexikanskt veitingahús þar sem þau hefðu sennilega aldrei borðað svoleiðis mat. Fólkið talaði varla stakt orð í ensku svo að þetta var athyglisverður dagur. Börnin þeirra voru nú ekkert allt of hrifin af matnum, ég gat nú ekki annað en brosað þetta voru sömu viðbrögð og koma hjá dömunum mínum þegar Bret vill að þær prufi einhvað framandi að borða.
Sunnudagurinn var alger leti dagur. Hann fór í það að þvo þvott og gera heimalærdómin.

þriðjudagur, apríl 29, 2008

mánudagur, apríl 28, 2008

Reikningur

Ég fór aftur með Cheyenne til lækninsins í dag. Það var tekin blóðprufa, og nú er blóðið bara eins og það á að vera sem betur fer. Svo að hún ætti nú alveg að vera að komast í lag. Hún var einhvað hálf slöpp í dag svo að ég leyfði henni bara að vera heima.

Við Bret vorum í reikningi áðan, og ég get svarið það þetta er alger kínverska. Það var verið að kenna okkur Babylónskt númerakerfi, Hebrew-Arabic, og Rómverskar tölur. Fatta nú ekki alveg af hverju það er verið að kenna þetta forn aldar drasl sem maður kemur aldrei til að nota. Ég er sko ekkert að plana að ferðast aftur í aldir til að fara í verslunarferðir eða þannig sko.
Við skiluðum af okkur fyrsta prófinu áðan. Ég vona að okkur hafi ekki gengið of illa.

sunnudagur, apríl 27, 2008

Aumingja Litla Barnið Mitt

Ég vaknaði á fösdudagsmorguninn við það að Chey var að æla. Hún var með alveg rosa magapínu. Bret áhvað að vera heima með hana svo að ég gæti farið að vinna. Ég sagði honum að fara með Chey til læknisins til að láta líta á hana, því að henni leið svo rosalega illa. Hann hélt nú að ég væri nú að gera of mikið úr þessu, en fór samt með hana til læknisins.
Læknirinn sendi hana upp á spítala þar sem hún væri mögulega með botnlangabólgu. Bret kom og sótti mig, og við mikið til eyddum öllum deginum upp á spítala. Chey var send í sónar og ekkert sást þar. Næst var hún send í ct scan sem kallast kannski sneiðmyndataka á íslensku, og þá kom í ljós að hún var ekki með botnlangabólgu sem betur fer.
Hún var með einhvern vírus í meltingarfærum sem olli bólgum í eitlum í eitlakerfinu. Og einn situr beint fyrir ofan botnlangan og þegar hann bólgnar þá veldur hann rosalega miklum sársauka og sömu einkennum og botnlangabólga.
Hér áður fyrr voru börn stundum skorin upp og þá var botnlanginn þeirra í góðu lagi. Það er nú bara gott að tæknin sé nú orðin svo góð að það sé hægt að taka mynd af því sem er hulið innan líkamans áður en að skurðhnífnum er beitt að óþörfu.
Svo var okkur sagt að við gætum farið heim með Cheyenne. Og okkur var ráðlagt að gefa henni verkjatöflur og engan sterkan mat. Mælt með grjónum, bönunum, og kornflexi. Aumingja Chey var orðin hundleið á spítalanum sem bauð ekki einu sinni upp á sjónvarp, en hún gat ekki einu sinni klætt sig þar sem hún var með vökva í æð.
Við mæðgurnar dunduðum okkur við að fjarlægja límbandið sem hélt snúrunni inn í handleggin á henni kjurri. Ég sagði Chey að bíða í smástund, og svo þegar ég sé í hausin á hjúkkunni þá bað ég hana um að taka þetta úr handleggnum á barninu svo að hún gæti klætt sig. Þá tekur hún eftir að mest allt límbandið er farið og spyr Chey hvort hún sé að taka þetta úr sér sjálf. Sem veldur því að Chey fer nú að tosa aðeins í þetta og endar með að tosa þetta bara alveg út.
Þá byrjar nú að blæða mikið og hjúkkan panikar og rífst og skammast yfir því að ég hafi bara leift barninu að taka þetta út sjálf. Ég er nú ekki byrjuð í hjúkkunámi en mikið til veit að maður þarf bara smá bómull eða grisju og smá þrýsting til að stöðva blæðinguna. Hjúkkan lét eins og heimurinn væri að farast og að Cheyenne hefði skorið svaka slagæð og væri að blæða út.
Hún rauk í básin við hliðina á okkur og náði í bréfþurkur og svo rauk hún aftur til að ná í hanska og svo setti hún bréfþurkurnar á handleggin á Chey til að stöðva blæðinguna.
Það var reyndar allt sem hún gat þurft á að halda til að sjá um blæðinguna á básnum sem Chey var á, beint fyrir aftan rúmið. Hanskar, vaskur, skúffur fullar af umbúðum, bómull, og þess háttar. Ég get nú alveg sagt að ég mundi alls ekki vilja lenda á sjúkrahúsi með hana á vakt, sem hleypur um eins og hauslaus kjúklingur við smá blæðingu.
Ég mæli ekki með að tilkynna barni um að það sé komin tími til að fara heim, og það sé í lagi að klæða sig. Halló, hvernig á að klæða sig með slöngu tengda í handlegginn? Hún er nú bara níu ára og búin að vera að láta pota í sig í tæpa 9 klukkutíma, og þegar er sagt að hún megi fara heim þá þarf allt að ske einn tveir og tíu. Hún var búin að fá yfir sig nóg veslingurinn.
En nú líður henni mikið betur. Við þurfum að fara með hana samt til læknisins á mánudagin, þurfa víst að taka blóðprufu til að sjá hverning hún hefur það.

föstudagur, apríl 18, 2008

Gleðilega Helgi

Selur

Þetta er (Monk Seal) ólettur selur sem við sáum á ströndinni. Hún gaf Gipsy næstum hjarta áfall þegar hún kom of nálægt og selurin gelti að henni og velti sér um.

Ég er ekkert smá fegin að það sé næstum komin helgi, þarf bara að komast í gegnum dagin í dag. Ég lærði að gefa sprautu í vinnunni, það var ekkert jafn erfitt að stinga sprautunni og ég hélt.
Gipsy er búin að skipta um skoðun hún er hætt við að vilja flytja frá Hawaii. Hún er ekkert allt of sátt við að þurfa að skilja alla vinina sína eftir. En svona er lífið þegar pabbi er í hernum. Það er nú ekkert rosalega langt þar til að hann hendir þeim hattinum upp í hillu. Ætli það verði ekki skrítið þegar maður hættir þessu fluttninga flakki.

þriðjudagur, apríl 08, 2008

(x+y) = :o(

Jæja það kom loksins að þessu. Ég er búin að láta skrá mig í reikning, og þvílíkt stress. Sem betur fer er Bret að taka þessa heila leikfimi með mér. Hann hló svo af mér þessi elska og gerði grín af mér í tímanum í gærkvöldi, þar sem ég sat frosin og starði á kennaran og kínverskuna sem hann var að skrifa upp á töfluna. Þegar við fórum svo heim þá var ég nú búin að ná að skilja þetta sem kennarinn var að reyna að troða inn í hausinn á okkur. En svo illa vildi til í kvöld að þegar ég settist niður til að gera heimavinnuna þá bara var allt dottið út úr hausnum á mér.

sunnudagur, mars 30, 2008

Myndir

Ég var að setja inn nýjar myndir.

mánudagur, mars 24, 2008

Ég er Rosalega Gömul

Ég er virkilega að deyja í dag. Mér líður eins og ég sé orðin hundrað ára gömul kerling. Það mótmæla allir vöðvar þegar ég dirfist að standa upp og hreyfa mig, og ekki er það nú mikið skárra þegar ég sest niður aftur. Ég vona að dagurinn á morgum verði betri.

Við fórum í göngu í gær öll fjölskyldan. Þetta var ekkert smá erfið æfing á okkur, örmjór stígur sem var alveg tilvalin til drulluköku baksturs. Maður var rennandi til og frá sumstaðar í drullunni á lóðréttum stígnum. Sem betur fer uxu plöntur meðfram stígnum svo að maður gat gripið í einhvað þegar maður missti jafnvægið. Ég set hér með nokkrar myndir af fjörinu.





























laugardagur, mars 15, 2008

Brosi Út í Bæði

Þvílík hamingja!!! Ég var að klára verkefnabókina og nú er ég búin með spænskuna punktur og basta. Skila af mér á þriðjudagin og ætti þá að fá að vita hvað ég fékk fyrir síðasta prófið.

Jæja annars tek ég sennilega reikning á næstu önn. Og þá verð ég í djúpum skít!!!

fimmtudagur, mars 13, 2008

Hlaupabólan Komin Aftur

Ennþá er þessi leiðindar hlaupabóla á ferðinni og nú er hún Cheyenne komin með hana. Ég er búin að tilkynna dætrum mínum að það sé bannað að verða veik það sem eftir er af árinu. Ég held bara að það sé nú bara komið alveg nóg af veikindum hjá þeim blessuðum.

Á mánudagin byrja þær í vorfríi frá skólanum, svo að þær geta slappað af í tvær vikur. Gipsy verður alveg á fullu við að plana afmælið sitt, hún verður þrettán þann fyrsta apríl. Jæts, unglingur!!! VIð fengum sal fyrir hana svo að hún getur boðið nokkrum vinum og dansað og spilað einhverja leiki. Ætli það verði ekki líka ein eða tvær vinkonur sem gista svo hjá henni.

Jæja þá er komið að lokaprófinu í Spænsku hjá mér. Ég er búin að læra alveg fullt í dag svo að ég geti kannski svarað öllu rétt. Svo liggur maður bara yfir verkefnabókini yfir helgina svo að ég geti skilað henni í næstu viku.

fimmtudagur, mars 06, 2008

27 Kjólar

Bret bauð mér í bíó í gærkvöldi. Við fórum að sjá myndina 27 Dresses hér á vellinum. Og þar sem þessi mynd þykir vera alger chick flick þá var bíó salurinn fullur af kvennfólki. Það voru kannski 5 eða 6 karlmenn á sýningunni svo að Bret sagði að þetta væri alveg hryllilegt sjokk fyrir karlmennskuna sína og að kannski hann ætti bara að fara heim. Hann var nú bara að grínast, en aumingja konan sem sat alein fyrir aftan okkur sagði að maðurinn sinn hafi þverneitað að fara á þessa mynd þar sem engin annar maður mundi vera þar. Hann fékk kannski að heyra það þegar konan kom heim, hahaha.

Gipsy er nú aðeins farin að skána af hlaupabólunni, sem betur fer. Ég er að verða svo kvefuð að nefið á mér er að breytast í Gullfoss.

laugardagur, mars 01, 2008

Hlaupabóla

Ekki fer það batnandi ástandið á heimilinu hjá okkur. Gipsy er með hlaupabóluna og er alveg alveg þakin í útbrotum, meira að segja í munninum. Og svo sagði læknirinn að þetta yrði ekki svo slæmt þar sem hún fékk sprautu við þessu þegar hún var lítil. Ég held að læknirinn hafi haft rangt fyrir sér, að vísu voru útbrotin rétt að byrja þegar hún fór til læknisins.

Ég kalla Gipsy bara doppu hún er með tonn af bleykum doppum út um allan kropp. Það er til bleykur áburður hér sem heitir calamine sem þurkar upp útbrotin og minkar kláðan, maður setur bara smá doppu á blöðrurnar, með skrautlegum doppóttum árangri.

Ég er alveg ferlega pirruð yfir að henni var ekki gefin önnur sprauta við hlaupabólunni þegar ég fór með hana síðast í sprautur. Sérstaklega þar sem læknirinn sagði að það væri ekki óalgengt tíu árum eftir að fá sprautu gegn hlaupabólu að fólk fái sjúkdómin. Sem betur fer fékk ég hlaupabóluna þegar ég var níu ára gríslingur, svo að ég þarf ekki að stressa mig yfir þessu of mikið. Cheyenne er alveg með það á hreinu að hún vill fá hlaupabóluna líka. Henni finnst það sko bara ekki sanngjarnt að Gipsy fái að sleppa úr skólanum í heila viku.

fimmtudagur, febrúar 28, 2008

Veikindi


Það var nú mikil sorg í dag hjá þeirri stuttu í dag. Hún er með strepkokkasýkingu, svo að hún getur ekki tekið þátt í Öskubusku sem hún er búin að æfa mikið fyrir. Litla skotta þurfti að fara heim úr skólanum í dag og verður líka heima á morgum. Hún getur kannski farið og tekið þátt í sýninguni sem verður annað kvöld eftir að vera búin að vera á fúkkalyfjum í 24 tíma en þá má hún farið í skólan aftur. Gipsy er líka með þetta sama og er líka heima frá skólanum.

Ég var í spænsku tíma áðan, ekki gaman. Það verður próf númer 4 á þriðjudagin og þá verður bara eitt próf eftir. Jibbý get ekki beðið eftir að klára þetta fag.

Annars er ég bara orðin grútsyfjuð og klukkan ekki einu sinni orðin níu, þvílík elli hjá mér. Ætli það sé nú ekki best að fara bara að skríða undir sæng.

sunnudagur, febrúar 24, 2008

Blá Belti



Litlu dömurnar mínar voru í Tae Kwon Do prófi í gær. Þær stóðu sig bara alveg rosalega vel, svo að nú hækka þær upp í blátt belti. Það fer nú að styttast í svarta beltið hjá þeim.

Tengdó er að fara frá okkur á morgum. Foreldrarnir hennar eru búin að vera veikir svo að hún þarf að fara að huga að þeim. Mér finnst alveg agalega leiðinlegt hve veðrið er óskemmtilegt í dag. Rigning, skýjað og brrrr kaldur vinndur. Ég bara neiddist til að búa mér til heitt kakó til að hlýja mér, það vantar bara vöfflurnar hennar mömmu til að borða með.

þriðjudagur, febrúar 19, 2008

Hafið bláa hafið...

Í tilefni þess að það var frídagur á mánudaginn þá leigðum við okkur pantún bát og fórum út á sjó að leika okkur. Þið verðið bara að afsaka en ég hef ekki hugmynd um hvað pantún bátur er á íslensku.

Hér er Cheyenne litli skipstjórin

Það var alveg fult af risa stórum skjaldbökum í sjónum. Því miður náði ég ekki neinni mynd af þeim.

Það voru líka nokkrar risastórar stingskötur sem við eltumst við til að skoða

Það var rosalega gaman hjá honum Bret

Svo settum við niður akkeri í grynningu út í miðjum sjó

Eins og sjá má þá er þetta vinsæll staður til að fara á fyrir bátafólk

Gipsy örugg í flotvestinu á bátnum
Bret altaf jafn hamingjusamur út í sjó
Cheyenne að busla

Bret að snorkla

Hmmm.... Hvað er hægt að sjá skemmtilegt ofan í sjónum?


Eftir þetta ævintýri þá er maðurinn minn eins og grillaður karfi. Ég er líka svolítð krispý.

sunnudagur, febrúar 17, 2008

Geysp og Gap!

Ég sit hér út á verönd að læra fyrir próf, eða kannski er réttara að segja að ég sé að reyna að halda mér vakandi yfir bókunum. Mig langar mest að henda mér upp í hengirúmið hans Bret og leggja mig í sólinni. En maður verður bara að reyna að drífa þetta af.

Bret fór með Cheyenne niður í bæ. Þau ætla að reyna að leigja einhverstaðar þríhjól til að rúnta um bæinn. Svo að það ætti að vera rosalega gaman hjá þeim.

föstudagur, febrúar 15, 2008

En gamað að það sé komin helgi

Litla Gipsy þegar hún var lítil og sæt. Nú er hún sæt og stærri en ég liggur við.


Bret var með póker spil í kvöld. Og ég er algerlega staurblönk eftir það ævintýri. Á morgum og á sunnudaginn verð ég að læra fyrir enn eitt prófið. Það verður svo frídagur hér í USA á mánudagin svo að við ætlum að leigja okkur bát og fara aðeins að leika okkur út á sjó.

Ég er alveg grút syfjuð held að ég sé bara að fara að sofa. Smá vín gerir mann bara subbinn.

fimmtudagur, febrúar 07, 2008

Shreveport, Louisiana

Jæja þá er maður búin að taka próf númer tvö í spænsku náminu, fékk A í báðum. Mikið er ég agalega klár, hehe... En samt bara skil ég ekki neitt í spænsku. Sem betur eru bara fimm vikur þar til ég klára það nám.

Veðrið er ennþá einhvað hálf lélegt, rigning og skýjað og sól og meiri rigning og sól. Tengdó er farin að örvænta yfir að komast ekkert á ströndina.

Nú er þetta komið á klárt við förum frá Hawaii í endaðan júní og við flytjum til Louisiana. Jibbí það verður flott veður þar, og þá meina ég snjólaus vetur. Við munum búa einhverstaðar í nánd við Shreveport. Við erum að spá í að kaupa hús þar. Það kostar sko ekki 150 milljónir að kaupa hús þar á stærð við skúr eins og hér á Hawaii.

Ég og Mamma mín í Grikklandi fyrir nokkrum árum síðan

fimmtudagur, janúar 31, 2008

Pirruð

Pirringur...Ég var að koma heim úr skólanum. Próf á Þriðjudaginn, sem sé þarf að liggja yfir bókunum alla helgina. Ég er sko ekki alveg viss um hvað ég var að hugsa þegar mér datt í hug að fara að læra enn eitt tungumálið. Það eru bara allt of mörg orð til í spænsku.
Svo ættum við að vera komin með það á hreint hér sennilega um helgina hvert við flytjum í júní. Erum að spá kannski í Louisiana. Ótrúlegt að við verðum flutt eftir rúma fjóra mánuði.

þriðjudagur, janúar 29, 2008

Er ekki að koma helgi?

Það sem mig langar mest til að gera í dag er að skríða aftur upp í rúm og sofa. Það er sko frekar dimmt úti og rigning, ekki alveg mitt uppáhaldsveður. Það er búið að vera frekar leiðinlegt veður undanfarið, skýjað og leiðinda gjóla.
Það er skóli hjá mér í kvöld. Mikið verð ég fegin þegar ég verð búin með skólan. Jú það getur svo sem verið ágætt og gaman að læra stundum, en oftast er það ekki svo. Jæja verð að fara að koma mér í vinnuna.

þriðjudagur, janúar 15, 2008

Ströndin

Þarna er tengdó í algeru sjokki yfir hver sjórinn var kaldur. Hehe...

Cheyenne að æfa sig á brimbrettinu


Það er spænskutími í dag hjá mér. Ég ruglaði þessu alveg og tímin svo ekkert á miðvikudögum, heldur tvisvar í viku á þriðjudögum og fimmtudögum. Þetta er ekki kennt á neinum smá hraða, sem væri ok ef ég mundi kunna einhvað í spænsku annað en hola og espanjól. Stress!!!
En nú ættum við bara að þurfa að bíða í rétt rúmar tvær vikur áður en við fáum að vita hvert við förum. Ég er sko alveg agalega óþolinmóð.
Tengdó er komin í heimsókn til okkar og verður hér í einhvern tíma hjá okkur. Við fórum á ströndina um helgina því að Bret var búin að lofa að taka Cheyenne út a brimbretti. Ég var nú ansi skrautleg upp á ströndinni það var svo mikið kalt rok að allt var að fjúka. Ég var í hettupeysu sem ég renndi upp og setti líka upp hettuna og vafði löppunum inn í handklæði. Það er sko ekki hægt að segja að ég hafi fengið mikla sól þann daginn.

þriðjudagur, janúar 08, 2008

Skóli enn og aftur

Jæja þá er maður bara að byrja í skólanum aftur. Annað kvöld ætla ég að fara að fara að byrja að læra spænsku, espanjol. Bret ætlar að læra með mér svo að við getum þá æft okkur saman. Þetta verður einhvað athyglisvert nám hjá okkur!
Svo tek ég líka örveirufræði, en þarf bara að taka rannsóknarstofu partin þar sem ég er búin að taka það bóklega. Svo að maður fær ekki einu sinni að sofa út á laugardagsmorgnum, en leiðinlegt. En maður verður bara að gera meira en bara það sem gaman er. Og kannski verður þetta gaman hver veit.

sunnudagur, janúar 06, 2008

Lady

Stuttu eftir að við fengum Lady í ágúst 2002.

Það er mikil sorg á heimilinu hjá okkur. Lady littli hundurinn okkar dó í gærdag. Ég held að hún hafi fengið smáveirusótt (Parvó) sem er slæmur vírus sem ræðst eingöngu á hunda og er því miður ólæknandi. Hún byrjaði að verða veik á föstudagskvöldið og var svo bara dáin dagin eftir, svo að þetta var mikið áfall fyrir okkur. Ekki mjög góð byrjun á nýju ári.

Dagin áður en Lady dó janúar 2008