sunnudagur, maí 18, 2008

Smekkleysa

Sorg, helgin er búin. Vinnu vikan hefst að nýju í fyrramálið, alger sorg. Þessi helgi var sko nefnilega ekki alveg nógu löng, því að við bara gerðum alls ekkert af okkur. Skruppum aðeins upp í Wal-Mart að versla. Við fórum líka upp í BX til að skila skyrtu sem maðurinn minn keypti, ástæðan var sú að skyrtan var alger hörmung! Við fórum reyndar í bíó það kvöld sem hann hafði keypt skyrtuna og þá fékk ég algert hláturskast þegar einn þjónnin í myndini var í nákvæmlega sömu skyrtuni og Bret hafði keypt nema bara að skyrtan í myndinni var ljós blá. Aumingja maðurinn minn var alveg stórmóðgaður honum þótti skyrtan svo flott. Þegar ég skilaði henni í dag og var spurð af hverju ég væri að skila, þá sagði ég nú bara að það væri út af því að skyrtan væri svo rosalega ljót. Afgreiðslumaðurinn leit bara á skyrtuna og sagði ókey, og endurgreiddi mér peninginn. Ég varð líka alveg sjokkeruð yfir endurgreiðslunni og spurði bara mannin minn hvernig honum hefði dottið í hug að borga svona mikið fyrir einhvað svona ljótt.

Ég fór með Chey til læknisins á föstudagin því að henni var svo illt í hálsinum. Læknirinn taldi nú ekki að hún væri með strepkokka sýkingu, en tók sýni og sendi í rannsókn svo að við ættum að fá að vita á morgum hver niðurstaðan verður. Læknirinn vildi endilega prufa enn eitt lyf fyrir Chey, einvað nefsprey sem virkar ekki á ofnæmi heldur á taugakerfið. Hann sagði að stundum ef börn væru með ofvirk taugakerfi, þá ylli það stundum sömu einkennum og ofnæmi. Hún er búin að taka það í nokkra daga, vonandi virkar það, en ég efast samt um það. Hún er búin að prufa alveg tonn af lyfjum og ekkert hefur virkað hingað til.

Það er komin tími til að skríða upp í bæli. Góða nótt.

Engin ummæli: