mánudagur, maí 05, 2008

Helgin

Japönsku Hjónin sem við hittum


Helgin hjá okkur var bara nokkuð góð. Við Bret fórum út að borða á föstudagskvöldið með vinafólki okkar. Við fórum á Japanskt steikhús sem heitir Benihana, maturinn var rosalega góður. Það sat Japönsk fjölskylda við borðið hjá okkur, Bret og Japanin voru að senda hvor öðrum drykki á meðan við vorum að borða. Þetta er nú ekki mynd af okkur en gefur smá hugmynd um hvernig maturinn okkar var eldaður.
Eftir matin þá fórum við í bíó. Í upphafi ætluðum við að sjá myndina Iron Man og keyptum reyndar miða á hana, en það voru um 100 manns í röð og engin sæti fyrir okkur 4 saman nema bara fremst í salnum. Svo að við ákváðum að sleppa hálsrígnum og bara að sjá einhvað annað í staðin. Hjónin sem voru með okkur vildu sjá Forgetting Sarah Marshall, mynd sem við vorum nú ekkert rosa spennt fyrir en létum okkur samt hafa það að sjá hana.
Aumingja Bret var komin með verki í magan þegar myndin var búin, hún var bara alveg spreng hlægileg. Ég mæli alveg pottþétt með að sjá þessa mynd, hún tekin upp hér á Hawaii. Ehemm, og svo var nú sýndur algerlega nakin karlmaður nokkrum sinnum, sem var nú alveg ágæt tilbreyting.
Laugardeginum eyddum við svo með Japönsku hjónunum sem við hittum á föstudagskvöldið. Bret vildi endilega fara með þau á Mexikanskt veitingahús þar sem þau hefðu sennilega aldrei borðað svoleiðis mat. Fólkið talaði varla stakt orð í ensku svo að þetta var athyglisverður dagur. Börnin þeirra voru nú ekkert allt of hrifin af matnum, ég gat nú ekki annað en brosað þetta voru sömu viðbrögð og koma hjá dömunum mínum þegar Bret vill að þær prufi einhvað framandi að borða.
Sunnudagurinn var alger leti dagur. Hann fór í það að þvo þvott og gera heimalærdómin.

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Sko bara langt og fínt blogg, frábært!!
Bara mikið át yfir helgina hehehe!!
Já ég er ekki búin að sjá þessa mynd en ég get ímyndað mér að hún sé heldur skondin eftir að hafa séð allar auglýsingarnar.

Nafnlaus sagði...

Kolla,
getur þú gefið mér upp tölvupóst Mrs. Joerger svo að ég geti sent henni póst. Þarf að spyrjast fyrir um Yearbooks sem ég hafði fjárfest í fyrir stelpurnar.

Nafnlaus sagði...

úúpppss gleymdi nafninu mínu...
þetta er semsagt frá mér Rakel J