föstudagur, júní 06, 2008

Vinnan Göfgar Manninn...


Sem betur fer var föstudagur í dag. Þessi vika er búin að vera alger martröð. Það er búið að vera alveg brjálað að gera í vinnunni. Ég þurfti að útskrá í kring um 150 nemendur og það fylgir því mikil vinna. Og það var stöðug truflun frá foreldrum, nemendum, símtölum, og öðru starfsfólki. Plús að það var stöðugur straumur af fólki sem vildi skrá börnin í skólan. Kaupa boli og svo framvegis og svo framvegis…

Það er komin sjöundi júní og ekki hef ég nú komið miklu í verk heima hjá mér. Flutninga gámnum verður parkerað fyrir framan húsið hjá okkur eftir eina viku, og þá verður maður bara að vera rosa duglegur að pakka inn í hann. Við reynum svo sennilega að senda bílin okkar í þriðjudaginn. Svo að hann verði komin til Kaliforníu á undan okkur. Við ætlum sko að keyra þaðan til Louisiana. Bret kom loksins litla rauða sport kagganum á bílasölu, vonandi selst hann áður en við flytjum.

Við klárum svo skólan þann sextánda júní. Ég bíð sko óþolinmóð eftir að sleppa, er sko alveg að klepra á þessum reikningi. Svo innilega leiðinlegur og flókin. Einn nemandin kvartaði yfir hve nytjalaus þessi reikningur væri. Og kennarinn sagði að þetta væri nú bara helst til að þjálfa fólk í rök hugsun. Arg…

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Vá það eru aldeilis margir að flytja þykir mér úr Hickam! En fékkstu jafn marga inn þá?

Fékkstu ársbækurnar frá kennurum stelpnanna?

Gangi ykkur vel í flutningunum, fegin að vera búin !

Nafnlaus sagði...

Fékk bækurnar í gær og þakka ég alveg ynnilega fyrir þetta Kolla mín. Stelpurnar voru ekkert smá ánægðar að sjá þær, en voru heldur svekktar að myndirnar af þeim kom ekki (við sem borguðum fyrir það) í bókina af "Best Friends" síðunum eða hvað þetta nú er kallað. Ég er nú frekar svekkt líka, tilgangurinn var að hafa þessar myndir teknar af þeim með vinkonunni sinni svo þær hefðu ætíð í ársbókinni en svo bara er það ekki sett í , heldur lélegt - I want my money back!!...hehehe

Enn og aftur takk fyrir þetta.
Góða skemmtun við að pakka!!