mánudagur, júní 30, 2008

Ferðalag

Í dag er dagurin sem við flytjum í burt frá Hawaii. Ég væri sko alveg til í að taka veðráttuna með, því að ég mun sko sakna þess að hafa glampandi sól næstum alla daga ársins. Þrátt fyrir að við förum upp í flugvél bráðum þá finnst mér við ekkert vera að fara neitt.

Við vorum niður í bæ á Hale Koa Hótelinu í nokkra daga. Það var bara alveg ágætt að vera þar. Stelpurnar voru voðalega ánægðar með að leika sér í sundlauginni, og við Bret sátum á barnum og drukkum “tropical” drykki með ávöxtum og sólhlíf, namm….

Það var ágætt að geta loksins slappað af, það var ekkert lítið stress að reyna að pakka allri búslóðinni niður. Við settum allt inn í 12 metra langan gám og allt komst fyrir, við áttum meira að segja smá pláss eftir. Maðurinn minn var sko ekkert smá pirraður þegar hann var að reyna að raða öllu inn í gáminn. Hann var alveg alsæll nokkrum sinnum þegar hann hélt að allt væri komið inn og á réttan stað. En það var kassi hér og kassi þar sem þurfti að pakka og aumingja maðurinn minn var nú bara alveg að tapa glórunni þegar maður rétti honum meira dót. Hahaha…
Þegar gámurinn kemst svo á leiðarenda þá höfum við bara tvo klukkutíma til að tæma hann. Ef það tekur meira en tvo tíma að tæma gámin þá þurfum við að borga meiri pening.

Bíllinn okkar bíður svo eftir okkur í Los Angeles, Kalifornía. Við sækjum hann í fyrramálið og þá hefst okkar langi, langi ökutúr. Við ætlum að byrja á því að keyra til Las Vegas og gista þar yfir nótt, þaðan förum við að skoða miklagljúfrið eða The Grand Canion.

Engin ummæli: