Við lentum í Los Angeles snemma í morgun, um klukkustund á undan áætlun. Það fyrsta sem ég tók eftir þegar við gengum út úr flugstöðinni var óþefur sem lyktaði eins og ruslatunna. OJ! Ekki alveg eins og maður er vanur í Hawaii sem lyktaði oftast af blómum.
Við tókum leigubíl til að sækja bílin okkar. Og þar sem klukkan var bara sex að morgni og staðurinn opnaði ekki fyrr en átta. Þá þurfum við að hanga og bíða í tvo klukkutíma. Úff og það var ekki einu sinni bensínstöð eða neitt álíka í nánd. Svo að maður gat ekki einu sinni keypt sér kaffi að drekka.
Keyrslan til Las Vegas var nú frekar erfið þar sem bæði ég og Bret vorum alveg grútsyfjuð eftir að geta ekki sofið í fluginu. Það endaði með því að við lögðum bílnum og reyndum að sofa í smá stund. Hitastigið í eyðimörkinni sem við keyrðum í gegn var um 107 gráður.
Um klukkan sjö í kvöld var hitastigið í Las Vegas 109 gráður. Það kólnar ekki mikið niður kvöldin, og það er eins og að maður opni sjóðheitan bakara ofnin og labbi beint inn í hann í hvert sinn sem maður fer út í hitan.
Við gistum á Circus Circus hótelinu í Las Vegas. Það er ágætis hótel, herbergið er stærra en á hótelinu sem við vorum á í Hawaii, nema bara engar svalir á þessu herbergi. Það er svo sem í góðu lagi þar sem við erum á tuttugustu og níundu hæðinni. Ég yrði sennilega bara alveg rosa lofthrædd þegar ég liti niður.
Við fórum með stelpurnar í smá skoðunarferð, þeim fannst þetta nú bara vera voða fínt hér. Gipsy man að vísu eftir síðustu heimsókn hingað en þetta var allt nýtt fyrir Cheyenne þar sem hún man ekkert frá síðustu heimsókn. Þær eru bara ekkert allt of hrifnar af hitanum. Bret sagði þeim bara að hitin hér væri fínn, og að hitin yrði agalegur í Louisiana það sem það er rosa raki þar.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
Jááá enginn smá hiti !! Ekki svo viss um að ég gæti meðhöndlað hann...
-Seint í gærkveldi og í nótt voru rosa læti hjá okkur, þrumur og eldingar alveg brjálað, svo að ekki var mikið sofið!!..
Gaman að heyra ferðasöguna hjá þér. Gangi ykkur vel með restina.
Kv. frá IL
Skrifa ummæli