laugardagur, júlí 19, 2008

Komin til Louisiana

Eftir nokkra daga stopp í Missouri var ferðalaginu haldið áfram. Við stoppuðum í smá stund í Arkansas og heilsuðum upp á frændfólk Brets og líka afa hans og ömmu. Móðurbróðir hans Brets á hesta og litla Cheyenne var alveg rosalega spent að hitta þann frænda, eða öllu heldur hestana hans. Hún var nú hvergi smeik og fór bara inn fyrir girðinguna til að geta verið nærri hestunum og klappað þeim betur. Það var bara eins og hún hefði alist upp þar sem mikið er um hesta, svo var hún voða leið þegar ferðinni var haldið áfram.

Við búum á hóteli og erum mikið í húsnæðisleit þessa dagana. Erum ekki búin að finna hús ennþá, kannski finnum við draumahúsið á morgum. Nýrri húsin eru mjög skemmtileg að innan, en mínusin er að það eru engin tré í garðinum. Eldri húsin eru með góðum trjám, en mínusin þar er að það er allt svo gamaldags inni í húsunum. Kannski finnum við einhvern milliveg, það er svo mikið af húsum til sölu hér.

Í gær skoðuðum við hús sem var rosalega flott að utan, með alveg dúbíu af gróðri, gosbrunnum, fiskum, skjaldbökum og stígum. Það tekur sennilega nokkuð marga klukkutíma í hverri viku að viðhalda öllum plöntunum. Húsið var nokkuð athyglisvert að innan. Það bjó eldri maður þar (sem á sennilega ekki langt eftir) og sonur hans. Það var frekar krípý að ganga um húsið þar sem það voru vefmyndavélar út um allt húsið, og líka tonn af tölvum og þess háttar dóti. Húsið var frekar gamaldags að innan, allar hurðarnar voru rennihurðar, og veggirnir voru í öllum regnbogans litum. Baðherbergið var síðan sautjánhundruð og súrkál með bláum flísum... Eldavélin var það besta í húsinu enda splunkuný.

í dag þurftum við að keyra til Dallas í Texas. Bret hafði keypt handa mér síma þegar við vorum í Missouri, og við þurftum svo að skila honum því að T-mobile virkar bara ekkert á þessu svæði. Og það er ekki einu sinni T-mobile búð hér sem við gátum skilað símanum til. Það var nú frekar pirrandi að þurfa að keyra í 3 klukkutíma til að skila einum síma, en hann var dýr svo að maður varð nú að fá peningin til baka og skipta um síma fyrirtæki. Nú erum við öll komin með ný símanúmer frá AT&T, sendu mér e-mail ef þú vilt númerið. Svo splæstum við Bret á okkur iphones.

Engin ummæli: