þriðjudagur, apríl 08, 2008
(x+y) = :o(
Jæja það kom loksins að þessu. Ég er búin að láta skrá mig í reikning, og þvílíkt stress. Sem betur fer er Bret að taka þessa heila leikfimi með mér. Hann hló svo af mér þessi elska og gerði grín af mér í tímanum í gærkvöldi, þar sem ég sat frosin og starði á kennaran og kínverskuna sem hann var að skrifa upp á töfluna. Þegar við fórum svo heim þá var ég nú búin að ná að skilja þetta sem kennarinn var að reyna að troða inn í hausinn á okkur. En svo illa vildi til í kvöld að þegar ég settist niður til að gera heimavinnuna þá bara var allt dottið út úr hausnum á mér.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
3 ummæli:
Baráttu kveðju-straumar alla leið frá Illinois!!
-En segðu mér, ertu að hugsa um að fara á klakann í sumar? Endilega láttu mig vita.-
Kv.Rakel J
Já það er nú eiginlega alveg komin tími á klakan.
nei nei. það er kominn tími á ungverjaland. pant fá þig í heimsókn.
Skrifa ummæli