laugardagur, mars 01, 2008

Hlaupabóla

Ekki fer það batnandi ástandið á heimilinu hjá okkur. Gipsy er með hlaupabóluna og er alveg alveg þakin í útbrotum, meira að segja í munninum. Og svo sagði læknirinn að þetta yrði ekki svo slæmt þar sem hún fékk sprautu við þessu þegar hún var lítil. Ég held að læknirinn hafi haft rangt fyrir sér, að vísu voru útbrotin rétt að byrja þegar hún fór til læknisins.

Ég kalla Gipsy bara doppu hún er með tonn af bleykum doppum út um allan kropp. Það er til bleykur áburður hér sem heitir calamine sem þurkar upp útbrotin og minkar kláðan, maður setur bara smá doppu á blöðrurnar, með skrautlegum doppóttum árangri.

Ég er alveg ferlega pirruð yfir að henni var ekki gefin önnur sprauta við hlaupabólunni þegar ég fór með hana síðast í sprautur. Sérstaklega þar sem læknirinn sagði að það væri ekki óalgengt tíu árum eftir að fá sprautu gegn hlaupabólu að fólk fái sjúkdómin. Sem betur fer fékk ég hlaupabóluna þegar ég var níu ára gríslingur, svo að ég þarf ekki að stressa mig yfir þessu of mikið. Cheyenne er alveg með það á hreinu að hún vill fá hlaupabóluna líka. Henni finnst það sko bara ekki sanngjarnt að Gipsy fái að sleppa úr skólanum í heila viku.

Engin ummæli: