Það er fellibylur á leiðinni til Texas. Fellibylurinn veldur því að við getum ekki flutt inn í húsið fyrr en eftir helgi. Þar sem bankinn sem við erum með húsnæðislánið í gegnum er staðsettur í Huston Texas. Það er verið að flytja allt fólk frá því svæði og loka öllum fyrirtækjum. Enn eitt vandamálið með þetta blessaða hús okkar. Meira að segja veðurguðirnir eru á móti okkur...
Hótelið sem við erum á sagði að við yrðum að flytja á morgum þar sem að við vorum ekki búin að sækja um að vera lengur og hótelið er fullbókað út af fellibylnum. Sem sé mikið af fólki frá Texas er að koma hingað. Sem auðvitað þýðir líka að flest öll hótelin eru fullbókuð, fann eitt hótel sem var með pláss á föstudag, sunnudag og mánudag, ekkert á laugardaginn, verðið þar 150 dollarar á nótt.
Fórum niður í afgreiðsluna bara til að athuga hvort einhvað hefði verið afpantað og okkur var sagt nei. Vorum við það að labba út þegar símin hringdi og einhver afpantaði nokkur herbergi, hjúkk við fáum að vera fram á þriðjudag hér. Og ef við getum ekki flutt á þriðjudaginn þá þarf ég að fara til læknis og fá einhvað róandi fyrir mig og restina af fjölskyldunni minni.
Fórum svo út í búð til að láta seinka aftur heimsendingunni af ískápnum, eldavélinni, örbylgju ofninum, þvottavélinni og þurkaranum.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
Já ég er ekki hissa að þú talir um eitthvað róandi, ég væri löngu búin að tapa mér!
En gott að heyra að það lukkaðist með hótel málin.
Hafið það gott yfir helgina og safnið orkunni fyrir stóra flutninginn e. helgina!!
Skrifa ummæli