mánudagur, september 22, 2008

Þetta Gengur Ekki Lengur

Við búum núna í trailer á vellinum, það var orðið svo stressandi að búa á hótelinu. Það var altaf svo fullbókað hjá þeim að maður vissi ekki hvort maður yrði að vera komin út af herberginu fyrir 11 um morgunin eða hvort einhver afpantaði og maður fékk eina nótt í viðbót.

Í síðustu viku sagði bankinn okkar að allur húsnæðispakkinn yrði sendur frá Texas til Louisiana þar sem það var enn rafmagnslaust í Texas. Okkur var lofað að all færi á stað á mánudagsmorgum sem var núna í morgum og við ættum að geta tekið við og flutt á miðvikudag eða fimmtudag. Þegar Bret hafði svo samband við þá um hádegið í dag, þá vissi engin neitt og Bret sagði þeim þá að hoppa upp í sinn óæðri enda og skella í lás á eftir sér. Jæja, hann hugsaði það að minsta kosti, svo að við erum búin að skipta um banka. Þetta var alveg fáranlegt sífeldar tafir hjá þeim, og við á stöðugu flakki á meðan. Svo að við ættum vonandi að vera að flytja eftir viku, það getur ekki verið að allir séu vonlausir hér í að ganga frá svona bankamálum hér.

Það er mikið að gera í skólanum hjá mér. Þurfti að skrifa 2 ritgerðir fyrir enskuna, svo var próf í reikning í morgum og svo í sálfræði á miðvikudaginn. Svo þarf ég að skila inn verkefni fyrir List og svo taka próf í því fagi líka í vikunni, plús tonn að lestri fyrir enskuna. Get ekki beðið eftir að helgin komi svo að maður geti náð andanum.

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Kondu sæl,
ég heiti Sísí og rakst á síðuna þína frá annað hvort Rakel eða einhv.(er gömul vinkona Stellu Freyju) Vildi kasta kveðju á þig og kvitta :) Við erum í Colorado Springs. Vonandi ferðu að komast inn í húsið (sem verður frábært þegar þú ert búin að gera breytingarnar)Gott gengi í prófunum.
Kv.
Sísí

Nafnlaus sagði...

Nei vá þetta er náttulega fáranlegt ástand, en þetta er vonandi að fara að gerast núna eftir banka-skiptin.