Það hafðist loksins af að fá húsið okkar afhent. Við fluttum inn á föstudagskvöld, og vorum svo að sækja dótið okkar smám saman yfir helgina. Svo fengum svo hjálp á mánudaginn við að flytja restina.
Ég þarf að drífa af lærdómin svo að ég geti rifið upp úr kössunum. Ég á að vera búin að taka próf í ensku fyrir sunnudagskvöld svo að ég er að reyna að lesa fyrir það próf. Svolítið skrítið ég er ekki vön að taka enskupróf með spurningum, venjulega þarf maður að skrifa ritgerð.
Stelpurnar og Bret eru alveg alsæl með sundlaugina og hoppa ofan í hana daglega. Ég hins vegar bara horfi á þau leika sér þar sem ég er svo mikil kuldaskræfa og vatnið er ískalt.
Nýji ískápurinn, eldavélin og örbylgjuofnin taka sig vel út í eldhúsinu. Maður neyðist seinna til að skipta um uppþvottavél líka þar sem sú sem var í húsinu er hvít og passar ekki við nýju hlutina. Annars varð ég rosalega skúffuð þegar ég var að skoða í bæklingnum sem kom með eldavélinni og sá þá að ofnin er ekki með sjálfhreinsibúnaði. Mér hafði ekki einu sinni dottið í hug að kíkja eftir því í búðinni, þar sem ég helt að þetta væri alveg standard á öllum eldavélum í dag. Og þá sérstaklega í eldavél sem er með glerhelluborði sem maður kaupir því að það er gott að þrífa svoleiðis, ekki eins og þetta gormadrasl sem er svo vinsælt hér í Bandaríkjunum. Bret hló bara af mér þegar ég var að kvarta og sagði mér að hann ætlaði sko ekki að þrífa ofnin.
Þegar húsið er komið í stand þá tek ég og set inn myndir.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
2 ummæli:
TIL HAMINGJU MEÐ FLUTNINGINN!!!!
Aldeilis góðar fréttir.
Til hamingju með innflutninginn!!
Bummer með éldavélina :-(
Ég er svo hrifin að herberginu með Arinninn, það á eftir að verða flott.
Kveðja,
Sísí
Skrifa ummæli