þriðjudagur, janúar 08, 2008

Skóli enn og aftur

Jæja þá er maður bara að byrja í skólanum aftur. Annað kvöld ætla ég að fara að fara að byrja að læra spænsku, espanjol. Bret ætlar að læra með mér svo að við getum þá æft okkur saman. Þetta verður einhvað athyglisvert nám hjá okkur!
Svo tek ég líka örveirufræði, en þarf bara að taka rannsóknarstofu partin þar sem ég er búin að taka það bóklega. Svo að maður fær ekki einu sinni að sofa út á laugardagsmorgnum, en leiðinlegt. En maður verður bara að gera meira en bara það sem gaman er. Og kannski verður þetta gaman hver veit.

1 ummæli:

Brynhildur Sarah sagði...

Örveirufræði? haha. það er ekkert til sem heitir örveirufræði. held að þú séir að tala um örverufræði elskan. Annars vottum við bara samúð okkar. Leiðinlegt að lady skyldi hafa dáið.
Knús.