sunnudagur, september 02, 2007

Flott Helgi

Það er 3ja daga helgi hér hjá okkur, hehe frí á morgum. Því miður verð ég víst að læra... Sem betur fer eru bara 11 dagar eftir af önninni. Ég á að skila inn uppdrætti af 7 síðna ritgerð á þriðjudaginn og svo senda ritgerðina inn fullkláraða á föstudaginn. Og auðvitað hef ég ekki svo mikið sem skrifað einn staf.

Aumingja Gipsy er með einhverja magaflensu. Hún er búin að vera ælandi og sitjandi á klóinnu í allan dag. Hún á bara alveg voðalega bágt.

Bret er búin að vera voðalega slæmur í bakinu í tæpar tvær vikur, en er loksins að lagast. Svona er ellin slæm!

Við keyptum nýja ilife 08 fyrir makkana okkar. Rosa fínt og virkar rosalega vel t.d. bjó ég til þetta video fyrir neðan á nýja imovie og það tók ekki nema bara nokkrar mínútur. Svo er iphoto albúmið líka mikið betra í nýju uppfærslunni.

undefined Just Having Fun



Add to My Profile | More Videos

Engin ummæli: