Jæja nú er ekki nema ein vika þar til að við flytjum. Það sem er mest pirrandi er að það eru kassar út um allt. Ég get ekki beðið þar til að ég get rifið allt upp úr kössunum aftur og hent kössunum í geymslu. Jú maður þarf víst að pakka sér niður aftur eftir svona sjö til átta mánuði.
Skólinn byrjar svo aftur á mánudaginn. Og ég er alveg glórulaus með hvaða fag ég tek. Það er boðið upp á algebru en ég bara man ekki neitt um hana. Svo að ég skít fell sennilega nema bara ef Bret tekur hana líka, þá verður hann að kenna mér allt sem hann lærir. Reyndar þarf að taka stöðupróf til að sjá hvort maður kunni nóg til að taka reikninginn. En ég á nú von á að það verði bara hlegið af mér, og svo settur stór stimpill á blaðið HAFNAÐ! Ég geri samt ráð fyrir að þetta verði krossapróf svo að maður svarar kanski rétt hér og þar, og þá náttúrulega algerlega á óvart.
Djís, það er næstum komin Október og ég ekki einu sinni búin að setja inn neinar myndir fyrir September. Ég bæti úr því við tækifæri.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli