þriðjudagur, september 18, 2007

Sma Pasa

Ég fékk loksins loka einkunnina mína úr síðasta heimspeki áfanganum. Ég fékk A jibbí! Nú þarf maður víst að ákveða hvað maður tekur á næstu önn sem byrjar 1. Október. Ætli maður reyni ekki að taka eins og 2 áfanga, úff. Ef þetta gengur allt upp þá ætti ég vonandi að getað útskrifast í Mars með associates degree í liberal arts. Svo ætti maður að fá góða pásu áður en hjúkku námið tekur við.

Nú eru bara 2 vikur þangað til að við flytjum í hitt húsið. Ég er náttúrulega ekki farin að setja mikið í kassa ennþá, en maður fer nú að drífa sig í þessu. Ég get ekki beðið eftir að flytja úr þessari kompu!!! Þetta raðhús er svo eldgamalt, illa hannað, og að hrynja líka.

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

:-D til hamingju med A-id titt ;)

Brynhildur Sarah sagði...

ég er svo pirruð... fæ ekki layoutið til að virka á síðunni minni. Varð að setja annað layout í staðinn, sem er glatað að því leiti að linkarnir til hliðar eru í svo rosalega litlu letri. arrgg. en til hamingju með nýja húsnæðið by the way. Og einkunina breiníak.