Við fórum á Gríska Menningu í gær. Við borðum Músakka sem var bara mjög gott, en hins vegar klúðruðu kokkarnir Pastatíinu. Þeir bjuggu það til með röngun núðlum. Og þar sem við erum á Hawaii var boðið upp á matin með grjónum í staðin fyrir tzatsiki eins og hefð er í Grikklandi. Mér finnst nú álíka slæmt að brjóta þá hefð og að manni sé ekki boðið upp á snakk og salsa á Mexikönskum veitingastað.
Í gærkvöldi horfðum við svo á bíómyndina Pathfinder. Myndin var ekkert spés en ég gat nú samt ekki annað en hlegið af henni. Það voru nefnilega víkingar í henni, og víkingarnir töluðu náttúrulega íslensku. Nema hvað að það var varla hægt að skilja neitt sem var sagt, því að það var svo mikill erlendur hreimur hjá sumum leikurunum. Hefði verið betra ef það hefði verið talað inn á hana með alvöru íslensku. Svo var aldeilis máluð slæm mynd af víkingum, þeir voru settir fram sem morð óðir villimenn með ekkert á milli eyrnanna.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli