þriðjudagur, ágúst 07, 2007

Blaður


Ég fer í skólan í kvöld, og svo í próf í næstu viku. Oj, ég virkilega hata proóf. Nú eru dömurnar mínar búnar að vera í skólanum í næstum 2 vikur. Gipsy fer í skólan í skóla strætó því að skólin hennar er ekki í göngufæri. Cheyenne labbar venjulega eða fer á hjólinu sínu.

Ég get varla beðið fram í október, en þá fáum við að flytja í betra húsnæði. Húsið sem við flytjum í er tvíbíli og lúxusinn líka, það er á einni hæð. Við höfum ekki búið í húsi á einni hæð síðan við vorum í Grikklandi.

Jæja það er kannski best að sletta í sig nokkrum kaffibollum til að sofna ekki í skólanum í kvöld. Já og svo þarf ég víst að leiðrétta 2 ritgerðir sem ég hef ekki hugmynd um hvar eru.

Engin ummæli: