föstudagur, ágúst 24, 2007

Kalimera

Um hádegisbil á morgun verður haldið upp á Gríska menningu niður í bæ, og mun allt í fullu fjöri þar til um níu annað kvöld. Og þrátt fyrir að þetta hafi verið árlegur viðburður allan þann tíma sem við höfum búið hér, þá bara höfum við aldrei farið. Á morgun ætlum við að bæta úr því aula ástandi og drífa okkur. Maður slefar bara yfir tilhugsununni um Grískan mat, namm! En kannski klúðrar kaninn eldamennskunni. Ég vona bara hið besta.

Engin ummæli: