mánudagur, ágúst 13, 2007

Brjalað Veður

Það er bara mikið um að vera hér á Hawaii. Það er verið að berjast við eld á norður hlutanum á þessari eyju, gengur víst ekki allt of vel. Sá í fréttunum að það var víst jarðskjálfti upp á 5,3 fyrr í kvöld á stóru eyjunni, en engin tsunami viðvörun var gefin út. Svo er líka fellibylurinn Flossie á leiðinni hingað, en hann á víst að fara fram hjá okkur. En maður veit aldrei hvað skeður, það verður kannsi smá rigning og rok hjá okkur á morgum.

Það er próf í heimspeki annað kvöld og ég er ekki búin að læra neitt. Pirrr!!!!

Engin ummæli: