þriðjudagur, desember 25, 2007

Gleðileg Jól Elskurnar Mínar

Við vorum með íslensk jól þetta árið, mínus hangikjöt. Eftir að vera búin að troða í okkur tonn af kræsingum, þá var loksins komin tími til að rífa upp jólapakkana. Litlu dömurnar voru rosalega hamingjusamar með alla pakkana sína. Cheyenne fékk fartölvu í jólagjöf, enda var hún búin að vera rosalega dugleg að safna fyrir helmingnum. Svo fékk hún bækur, föt og skó. Jólasveinnin kom með Wii leikjatölvu handa henni. Gipsy fékk iPod touch, föt, skó og svo myndavél frá Jólasveininum.
Ég var rosalega gáfuð og keypti hlaupabraut handa mér í jólagjöf enda veitti ekki af, maður er svoleiðis búin að troða í sig mat og nammi. Sko keypti elskan mín handa mér leiðsögutæki svo að ég rata altaf aftur heim.
Bret var að leika sér í Wii tölvuleiknum í morgum, það var alger brandari hann var að boxa og svo var tækið ekki að gera nákvæmlega eins og hann vildi svo að hann var farin að æpa á leikinn.
Við fórum niður á Waikiki ströndina í dag, og lágum þar í algerri leti í nokkra klukkutíma. Þetta eru jú kannski síðustu jólin í nánustu framtíð sem við höfum þann lúxus að búa þar sem það sé nógu heitt til að flatmaga á ströndinni. Svo borðuðum við kvöldmat á Hale Koa hótelinu.

Þessi maður lá fyrir framan okkur löðrandi í olíu og í pínkulítilli sundskýlu. Þegar Gipsy sér hann segir hún "þetta er ekki allt í lagi með þetta fyrir framan okkur." Cheyenne hvíslar að mér "Mamma er þetta maður eða kona sem liggur þarna?" Hahaha

Engin ummæli: