miðvikudagur, nóvember 07, 2007

Er snjór hjá þér?

Jæja nú er það bara komið í ljós að karlinn fékk ekki verkefni til að vinna hér næstu þrjú árin. Hann fékk jú annað verkefni hér á Hawaii en bara í sex mánuði. Hann verður bara aðeins færður til í starfinu. Svo að við erum á leið héðan bráðum.

Okkur er farið að leiðast svolítið hve lítil eyjan er. Við elskum veðrið út af lífinu, en það er bara ekki nóg. Ég veit að maður á alveg pottþétt eftir að sakna þess, að geta sest út í sólina með kaffi bollann sinn allan ársins hring. Það er að vísu búið að rigna svolítið upp á síðkastið. Ég sá í sjónvarpinu að það var sagt að þetta mundi nú vera blautari vetur en fólk er vant hér. Það er nú samt allt í lagi, fíla regnið betur en snjó og hálku.

Við skelltum okkur í leikhús í gærkvöldi. Við fórum að sjá Ljóna Konginn. Það var gaman að sjá sýninguna og stelpunum fannst alveg æðislegt. Gipsy sagði að þetta væri sko svo miklu skemmtilegra að horfa á heldur en Ljóna Konginn á DVD. Svo kunni hún náttúrulega flest öll lögin og söng með. Sjá fyrir neðan úr söngleiknum.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

það er bannað að fara .,.,.

við vorum að fá framlengingu til mai 2010 wow.,.,.

en annars ein spurning ,i hvaða stærð af buxum eru gellurnar þínar,er með slatta sem mig vantar að losna við i júníor stærð ,,hafðu samband jsmorris@hawaii.rr.com
kveðja
stella