Jæja er loksins búin að skrá mig í hjúkrunarnám. Ég tek fimm áfanga þessa önnina, svo að ég ætti að vera vel stressuð. Byrja á mánudagin með algebru fyrir byrjendur, ég get ekki sagt að mig hlakki beint til að læra það fag.
Við búum ennþá á hóteli, og erum orðin vel pirruð á því. Það var einhvað klúður hjá VA með að ábyrgjast húsnæðislánið en þeir eru búnir að leiðrétta kerfið hjá sér. Svo að þetta tafði allt um rúma viku. Við ættum að fá afhent 5. September eða fyrr ef allt verður klárað. Seljandin á að laga sundlaugina og flísaleggja gólfin áður en við fáum húsið. Við erum að vonast eftir að það verði allt gert í næstu viku.
Þetta voru nú meiri subburnar sem bjuggu þarna í húsinu. Það er bara hörku djobb að þrífa allt. Allir eldhús skápar með olíuskám og klístraðir, eldavélin og örbylgjuofnin alger vibbi. Ég held nú bara að sturtan hafi aldrei verið skrúbbuð, það var svo mikil mygla á sturtuhurðinni og í sturtuklefanum að það hálfa væri nóg. Svo er líka teppi inni á baðherberginu sem er með stórum myglublettum fyrir framan sturtuna, halló er fólk ekki í lagi, maður setur ekki teppi á baðherbergis gólf.
Ég veit ekki alveg á hvaða lyfjum fólkið var, sem ákvað að setja veggfóður í húsið. Það má kannski vera að manneskjan sem valdi veggfóðrið hafi verið blind, eða jafnvel í einhverskonar leik, þar sem bundið var yfir augun á meðan á valinu stóð. Ég get svo sannarlega sagt að veggfóðrið er alger smekkleysa sem særir í manni augun. Það vantar bara Valla bróðir til að mála og gera fínt.
Annars verður þetta bara alveg rosalega flott þegar við erum búin að laga það sem laga þarf. Bret er alveg alsæll með að fá stóran 2ja bíla bílskúr. Stelpurnar alsælar með sundlaugina, og ég alsæl með að búa loksins í húsi sem er með góðu plássi (204 fermetrar). Erum meira segja með aukaherbergi fyrir ykkur sem dettur í hug að koma í heimsókn til okkar.
Jæja þarf að fara að sækja dömurnar. Þær taka skólastrætó til og frá skólanum við nýja húsið. En þar sem við erum á hóteli á herstöðinni þá þarf ég að skutlast þetta fram og til baka, sem væri kannski ekkert svo slæmt nema það er um 45 - 55 mínútur á milli skólastrætóana hjá stelpunum. En sem betur fer er þetta bara tímabundið, ættum að getta flutt fljótlega vonandi.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
ÆJi ekki nógu gott þetta með VA, litlu bjánarnir.
En aldeilis flott að seljandinn ætli að gera við sundlaugina!!
Hvernig líkar stelpunum við skólann sinn?
Já ég hef aldrei skilið þá heimsku hjá fólki að setja teppi inná baðherbergin, er ekki alveg að gera sig..
og hvað þá að skella uppá einhverju hræðilegu veggfóðri- have fun skrapa það af!!..
Bestu kveðjur frá Illinois
Rakel og gengið.
Skrifa ummæli