Það er jólapartý frá vinnunni hans Bret í kvöld. Þetta verður á hóteli niður í bæ, en ég er svo kölkuð að ég man ekki hvað það heitir. Ég tók mér sko frí í vinnunni á morgum bara svona til öryggis, hehe kannski verð ég þunn... Þetta er nú hálf klökkt að vera búin að búa hér í næstum 4 ár og aldrei djammað í borginni. Við reyndum einu sinni en það var grenjandi rigning svo að maður snéri bara við og fór aftur heim.
Namm. Ég er fullan munn af bíngó kúlum... Sarah þú ert sko alveg frábær manneskja!!! Takk fyrir að senda mér nammi!!!! Þú verður pottþétt að koma til mín á næstu jólum og endurvekja jólahefðina.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
3 ummæli:
Jæja, fékkstu þynkuna í heimsókn??? ...hehehe
Nei mikið andskoti er maður orðinn lélegur í þessu
vonandi skemmtirðu þér vel. held að einn pakkinn sé kominn frá þér. veit ekki hvaða pakki það er.
Skrifa ummæli