Þetta er (Monk Seal) ólettur selur sem við sáum á ströndinni. Hún gaf Gipsy næstum hjarta áfall þegar hún kom of nálægt og selurin gelti að henni og velti sér um.
Ég er ekkert smá fegin að það sé næstum komin helgi, þarf bara að komast í gegnum dagin í dag. Ég lærði að gefa sprautu í vinnunni, það var ekkert jafn erfitt að stinga sprautunni og ég hélt.
Gipsy er búin að skipta um skoðun hún er hætt við að vilja flytja frá Hawaii. Hún er ekkert allt of sátt við að þurfa að skilja alla vinina sína eftir. En svona er lífið þegar pabbi er í hernum. Það er nú ekkert rosalega langt þar til að hann hendir þeim hattinum upp í hillu. Ætli það verði ekki skrítið þegar maður hættir þessu fluttninga flakki.
2 ummæli:
Hva, varstu að gefa skólastjóranum sprautu í rassinn??...híhíhíhí...ertu ekki annars ennþá að vinna í Hickam skólanum?
-Nú þarftu að vera duglegri að blogga kona svo að ég sakni þín ekki eins mikið. Það er sjálfsagt ekki að spurja að því að veðrið er gott hjá þér! Hér er farið að hlýna all hressilega, fór út frostmarki í 15 gráðu hita yfir nótt!! Lífið er gott, húsið æðislegt, nágrannar okkar fínir, stelpurnar ánægðar í skólunum sínum, og meira að segja dýrin mín hafa það voða kósý líka!
Hlakka til að heyra meira af þér og þínum. Eruð þið alveg búin að ákveða hvort þið ætlið að flytja ykkur sjálf eða láta herinn sjá um það alfarið?
Skólastjórin bauð ekki á sér rassin til sprautu tilrauna, hehe. Mr.Sakata biður voða vel að heilsa ykkur öllum.
Jújú veðrið er alveg rosa fínt fyrir flesta nema mig. Fór með stelpurnar i sund og ég var að krókna í peysu. Ég mundi alveg senda nokkrar gráður til þín til að hita upp hjá þér ef ég gæti.
Jú við ætlum sko að flytja okkur sjálf og græða nokkra dollara á flutningunum.
Skrifa ummæli