Ég fór aftur með Cheyenne til lækninsins í dag. Það var tekin blóðprufa, og nú er blóðið bara eins og það á að vera sem betur fer. Svo að hún ætti nú alveg að vera að komast í lag. Hún var einhvað hálf slöpp í dag svo að ég leyfði henni bara að vera heima.
Við Bret vorum í reikningi áðan, og ég get svarið það þetta er alger kínverska. Það var verið að kenna okkur Babylónskt númerakerfi, Hebrew-Arabic, og Rómverskar tölur. Fatta nú ekki alveg af hverju það er verið að kenna þetta forn aldar drasl sem maður kemur aldrei til að nota. Ég er sko ekkert að plana að ferðast aftur í aldir til að fara í verslunarferðir eða þannig sko.
Við skiluðum af okkur fyrsta prófinu áðan. Ég vona að okkur hafi ekki gengið of illa.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
Aldeilis flott hjá þér Kolla!
Gott að heyra að gellan sé orðin betri og blóðprufur fínar. En gerðu eitthvað í þessu með það sem við spjölluðum um á MSN síðast ef það heldur áfram áður en það gæti orðið of seint..please!
Verðum í bandi
Skrifa ummæli