föstudagur, ágúst 17, 2007

Hermenn

Það er frídagur í vinnunni og skólanum í dag. En aumingja Bret þurfti samt að fara að vinna. Stelpurnar tóku þátt í Operation Hele On í dag. Þá fá þær að vera hermenn í einn dag, svaka gaman. Gipsy tók þátt í þessu í fyrra líka en Cheyenne var of lítil þá. Hún var nú svolítið óörugg þegar ég skildi hana eftir í dag. Hún var meira að segja svolitið vonsvikin yfir að hafa ekki lent í sama hóp og Gipsy var sett í, og þá er mikið sagt.

Ég verð í því að taka til í dag, húsið er í el rústos! Svo þarf maður víst að byrja að pakka niður í kassa líka. Það er svo gaman hjá kettinum okkar þessa dagana. Hún elskar að fela sig og leika sér í kössunum.

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

og hvernig for thetta allt saman^... sendu mer linu. hvert erud tid ad flytja...

Kolla sagði...

Við erum bara að flytja í annað hús