fimmtudagur, september 27, 2007

2+2=4

Ég fór að taka stöðupróf í reikningi í dag. Ég náði ekki einu sinni fyrsta hlutanum svo að ég stend illa. Það hjálpar náttúrulega ekki til þegar reiknikerfið er með fetum og tommum og “yards” hvað sem það nú kallast á íslensku. Því miður eru ekki allar þjóðir jafn gáfaðar og við íslendingarnir sem notum metrakerfið til að einfalda allan reikning. Ráðgjafinn í skólanum spurði hversu langt ég hafi lært reikning áður fyrr. Á klakanum vorum við nú farin að læra algebru í gaggó en það var náttúrulega fyrir næstum 20 árum síðan. Og grautarhausinn minn man ekkert lengur en hann þarf að muna. En mér var boðið að mæta í stærfræði tíma á þriðjudagskvöldið og sjá hvað væri verið að kenna og hitta kennarann. Hann á víst að vera rosalega góður. Það kemur bara í ljós.

Ég er svo agalega ánægð því að eftir rétt rúman klukkutíma þá byrjar fyrsti þátturinn af nýju þáttaseríunni Greys Anatomy. Svo byrjar líka nýja serían af CSI og auðvitað á sama tíma svo að ég verð bara að horfa á það í tölvunni seinna. Ég er annars að pæla í að pannta mér svona áskrift af Digital upptökutæki frá kabal fyrirtækinu. Þá missir maður nú ekki af neinu. Það er víst hægt að taka upp eins og 30 klst af sjónvarpsefni á það tæki.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hlakka til að heyra hvað þér fannst um tímann í kvöld!